Fara í efni

TOMMI OFBÝÐUR SIÐGÆÐISVITUND FACEBOOK

Í sakleysi mínu leyfði ég mér í gær að dreifa ákalli Tomma, góðvini þjóðarinnr, um að loka spilakössum til frambúðar.
Í ákalli sínu segir Tommi að hann sé einn af 86% þjóðarinnar sem Gallup sagði síðastliðið vor að væri þessarar skoðunar eftir ítarlega könnun meðal landsmanna.

Facebook slökkti á þessari deilingu minni því hún samræmdist ekki sýn fyrirtækisns á hvað væri siðlegt í samfélagi manna. Það er þá væntanlega að vera þessarar skoðunar og láta hana í ljósi.

Á morgun verða kassarnir opnaðir í boði stjórnvalda.

Það er þá væntanlega siðlegt og sleppur framhjá ritskoðun.