Fara í efni

ÞÖRF Á VÖKULLI VERKALÝÐSHREYFINGU!

1. maí 2013
1. maí 2013

Ég rétt missti af Ævari Kjartanssyni  á RÚV í morgun. Heyrði blálokin á þætti hans þar sem hann kynnti lokalagið - ekki af verri endanum  - við ljóð Stefáns Ögmundssonar, til langs tíma forystumanns íslenskra prentara og eins magnaðasta  baráttumanns félagslegra gilda sem ég hef kynnst og góðs frænda og vinar.
Lagið var eftir Hallgrím Jakobsson en ljóð Stefáns, sem er baráttuhvöt, heitir Til átaka!

Vinnulýður 

verk þín bíður

vörn og sókn hins snauða manns

sæktu glaður

sameinaður

sigra þína í greipar hans

sem að þjáði 

þig og smáði 

þínum börnum örbyrgð skóp

Láttu gjalla

um landsbyggð alla 

lýðsins sterka sigurhróp


Ljóðið hæfir tilefninu,  1. maí, baráttudegi verkalýðsins og ber merki harðra stéttaátaka á fyrri hluta 20. aldar og framyfir hana miðja. 

Hér sunnan heiða er dagurinn bjartur og fagur og gleður það hjarta mitt. Í áratugi hef ég risið úr rekkju á þessum degi, spenntur að sjá hvernig viðri fyrir útifundi dagsins. Ég á góðar minningar frá þessum degi á fundum víðs vegar um landið - nú hin allra síðustu ár hitti ég marga góðaf élaga í 1. maí kaffisamsæti BSRB. Engin undntekning var þar á í dag, fullt út úr dyrum! og þar margt góðra félaga og vina.

Hugurinn er hjá baráttufólki launafólks sem  kemur saman til að stilla saman strengi og heita því að virkja saman kraftana til hagsbóta launafólki í baráttu fyrir jöfnuði og lýðræði og betra samfélagi.
Alltaf og öllum stundum er þörf á öflugri verkalýðsbaráttu sem stendur vörð um réttindi launafólks á vinnustaðnum og í þjóðfélaginu almennt; hreyfingu sem stendur vaktina gagnvart þeim sem stýra fjármagninu og fara með völdin.

Á tímum kreppu og samdráttar er jafnvel meiri þörf en endranær á vökulli verkalýðshreyfingu til að berjast fyrir réttlátum skiptum í þjóðfélaginu. Þá reynir á öryggisnet samfélagsins meir en ella en í mínum huga hefur það alltaf verið höfuðmarkmið verkalýðsbaráttunnar að þéttríða það net. 

Ég sendi öllu launafólki bestu 1. maí kveðjur.