Fara í efni

ÞAU SKORTI REISN OG DÓMGREIND


Það var sá ágæti Framsóknarmaður Guðni Ágústsson, sem sagði í Blaðinu í dag, að það væri ekki nokkur vafi í sínum huga að "Bush-stjórnin í Bandaríkjunum misnotaði góðan vilja okkar þjóðar og setti okkur inn á lista yfir viljugar og staðfastar þjóðir. Það er einhliða ákvörðun Bandaríkjamanna sem þeir ættu að biðjast afsökunar á."
Ég hef aldrei efast um að Guðni Ágústsson hafi verið ósáttur við stuðning íslensku ríkisstjórnarinnar við innrásina í Írak. Þess vegna tekur hann því fegins hendi þegar Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, reynir að rétta kúrsinn og viðurkennir að ríkisstjórnin hafi ekki haft samráð við Alþingi eins og lög gera ráð fyrir og að stuðningurinn hafi verið mistök.
Nálgun Guðna Ágústssonar er hins vegar röng í tvennum skilningi. Í fyrsta lagi er rangt að skírskota til vilja þjóðarinnar í því samhengi, sem Guðni gerir. Vilji hennar lá alltaf ljós fyrir. Ítrekað sýndu skoðanakannanir að þjóðin var andvíg árásarstríðinu. Það var því íslenska ríkisstjórnin sem misnotaði íslensku þjóðina en ekki Bush. Í öðru lagi var það íslenska ríkisstjórnin sem einhliða tók ákvörðun sína um að lufsast með þeim Bush og Blair þrátt fyrir að þær upplýsingar, sem nú liggja fyrir væru öllum sem vildu vita morgunljósar.
Hér vísa ég í frábæra grein Steinþórs Heiðarssonar, hér á vefsíðunni. Þar segir á meðal annars:
"Þau lokuðu eyrunum fyrir því sem Hans Blix, Scott Ritter og aðrir sem höfðu lengi starfað við vopnaeftirlit í Írak, sögðu öllum sem heyra vildu. Þau ákváðu að trúa Colin Powell sem laug svo miklu frammi fyrir Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í þágu innrásar sem þegar hafði verið ákveðin, að hann lét breiða tjald yfir hið fræga málverk Picassos af fólskulegum loftárásum fasista á smábæinn Guernica í Spánarstríðinu 1936-1939. Þau höfnuðu öllum rökum þeirra sem sýndu fram á að árásarstríð gegn Írak væri brot á alþjóðalögum og stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna en hömpuðu myndunum þar sem módel á vegum Ahmed Chalabi keyrðu trukka með álrörum og fleiru fram og aftur um eyðimörkina fyrir góða borgun.
Til að gera langa sögu stutta, lágu fyrir allar þær upplýsingar sem þurfti til að taka rétta ákvörðun í þessu afdrifaríka máli, bæði um stöðu mála í Írak og þau hagsmunasambönd sem sköpuðu samstöðu innrásarríkjanna. Það sem íslensku ráðherrana – Davíð, Halldór, Geir, Þorgerði, Valgerði og öll hin – skorti í raun og veru var einfaldlega reisn til að taka sjálfstæða ákvörðun og dómgreind til að skilja á milli staðreynda og lyga."

HÉR er grein Steinþórs Heiðarssonar í heild sinni.