Fara í efni

ÞARF ÞETTA EKKI AÐ RÆÐAST Á VETTVANGI LAUNAFÓLKS?

KAUPIR HLUT Í SINNUM
KAUPIR HLUT Í SINNUM

Lífeyrissjóðir voru stofnaðir með stuðningi verkalýðshreyfingar  til að tryggja launafólki öruggt ævikvöld. Ríki og sveitatrfélög fengu lengi vel fjármuni að láni frá lífeyrissjóðunum til uppbyggingar á velferðarkerfinu, ekki síst húsnæðiskerfi - sem svo aftur gagnaðist launaþjóðinni.  

Vilja hagnast á velferðinni

Síðan gerist það að sú hugmyndafræði verður ráðandi undir síðustu aldamót að ríkið eigi að halda að sér höndum hvað varðar velferðarþjónustuna, hana eigi helst að einkavæða. Eftir sem áður verða lífeyrissjóðirnir að koma peningunum sem streyma inn án afláts í formi iðgjalda frá launafólkinu, fyrir í fjárfestingum.
Ástæðan fyrir því að hægri sinnaðir stjónmálamenn vilja að hið opinbera haldi að sér höndum er sú að þeir vilja greiða götu fjármálafólks sem vill hagnast á velferðinni.

Hin mótsagnakennda tilvera

Um leið og þessu vindur fram eru stofnuð fyrirtæki  til að halda út á þessa braut. Mörg þeirra stæra sig af því að vera í höndum kvenna, enda vilji konur  fjárfesta í velferðarmálum!
Reyndin er sú að með því móti eru þær að greiða götu einkavæðingarinnar. Og lífeyrissjóðirnir - þeir taka að beina fjármagninu í þessa átt.
Þegar upp er staðið er helstu hvata að einkvæðingu velferðarkerfisins að finna í lífeyrissjóðunum og fjárfestingarfyrirtækjum í eigu kvenfjárfesta.
Var einhver að tala um mótsagnakennda tilveru? Um þetta hef ég oft fjallað hér á heimasíðunin (sjá t.d. https://www.ogmundur.is/is/greinar/enikavaedingin-freistar )

Lífeyrissjóðirnir og Eva

Allt þetta kom upp í hugann þegar ég las frétt í Morgunblaðinu í dag um að Kjölfesta, fyrirtæki í eigu  12 lífeyrissjóða o.fl., hefðu keypt 30% hlut í „velferðarfyrirtækinu EVU,"  sem að sögn forstjóranna, Ásdísar Höllu Bragadóttur og Ástu Þórarinsdóttur hefði skilað hagnaði af starfsemi sinni. Í blaðinu er síðan haft eftir Kolbrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Kjölfestu (fyrirtækis lífeyrissjóðanna) að mjög áhugavert sé fyrir fjárfestingarfélagið að taka þátt í uppbyggingu á þjónustu við aldraða, fatlaða, sjúka og aðra þá sem þurfa á velferðarþjónustu að halda."

Slæm blanda í aldingarðinum

Þarf þetta ekki að ræðast innan verkalýðshreyfingarinnar? Frjálshyggjufólk á ráðherrastólum, lífeyrissjóðir án félagslegrar jarðtengingar og gróðaleitandi Evur eru ekki góður kokteill í neinum aldingarði.
Margoft hefur komið fram að Íslendingar vilja heilbrigðisþjóðnustu fjármagnaða úr sameiginlegum sjóðum. Sjá t.d.:
https://www.ogmundur.is/is/greinar/til-marks-um-samkennd-islendinga-ad-their-hafni-einkvaedingu-heilbrigdisthjonustunnar