Fara í efni

SKÓLAMÁL, HÆLISLEITENDUR OG KÚBA TIL UMRÆÐU Í MORGUN-BÍTIÐ

Bylgjan - í bítið 989
Bylgjan - í bítið 989

Í morgun sat ég á spjalli við þá Heimi og Gulla í morgunþætti Bylgjunnar og ræddum við ýmislegt sem hátt ber í þjóðfélagsumræðunni hér heima og erlendis.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar að torvelda fólki eldra en tuttugu og fimm ára að setjast á skólabekk í framhaldsskóla er að mínum dómi stórt skref í afturhaldsátt og reyndar illskiljanleg ákvörðun.
Þá var rætt um hælisleitendur og refsingar sem hér eru viðhafðar ef hælisleitandi kemur hingað til lands án skilríkja. Ég lagði fram lagafrumvarp með aðskiljanlegum tillögum til réttarbóta þar á meðal því að bann yrði lagt við slíkum refsingum. Þetta ræddum við lítillega í þættinum og síðan um Kúbudeiluna og áform Obamas forseta að afleggja viðskiptabannið á Kúbu eftir hálfrar aldar viðskiptaþvinganir.  

Spjallið er hér: http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP32216