Fara í efni

ORÐ SKULU STANDA


Þegar Hæstiréttur kvað upp úrskurð sinn sem ógilti kosningar til stjórnlagaþings, þá gagnrýndi ég réttinn harðlega. En ég tók fram að úrskurði hans bæri að hlíta til hins ítrasta. Það þýðir á mannamáli að engar fjallabaksleiðir megi fara til að komast framhjá niðurstöðu Hæstaréttar. Að mínu mati er skipan stjórnlagaráðs með sömu einstaklingum og kosnir voru til stjórnlagaþings tilraun til einmitt þessa. Verði þetta niðurstaða Alþingis þá næst hún fram án míns stuðnings. Í dag lýsti ég yfir andstöðu við þetta ráðslag og að ég myndi ekki greiða þessari tillögu atkvæði mitt. Enda er það svo að orð skulu standa og grunvallarreglur skal virða!
Hér má m.a. sjá hvað ég hafði um þetta að segja: http://mbl.is/frettir/innlent/2011/02/25/ogmundur_osammala/