Fara í efni

MIKIL VIÐBRÖGÐ VÍÐA AÐ TIL STUÐNINGS JULIAN ASSANGE

Fréttir af mótmælum við breska sendiráðið 21.,22, og 23. desember sl. gegn framsali Julian Assange, stofnanda fréttaveitunnar Wikileaks, til Bandaríkjanna hafa vakið mikla athygli. Þessi mótmæli falla sem mósaík inn í mótmælaöldu víða um heim og hafa fréttir af þeim ratað víða. Viðvera Kristins Hrafnssonar, núverandi aðalritstjóra Wikileaks, við mótmælastöðuna léðu henni aukið vægi. Bar hann fundinum sérstaka kveðju Julian Assange en bréfið til sendiherra Bretlands á Íslandi hafði verið lesið fyrir hann. 
Fréttablaðið og Morgunblaðið gerðu mótmælastöðunni góð skil og Stöð 2 var með ítarlega fréttaskýringu. Á vefsíðu Ríkisútvarpsins var einnig fjallað ítarlega um málið.
Fjölmiðlamenn skynja að málið er þeim tengt; að aðför að Wikileaks er aðför að frjálsri fréttamennsku.
Ég hef fengið mikil viðbrögð víða að við þessu íslenska framlagi til stuðnings Julian Assange.      

Innlendur fréttaflutningur af mótmælum við breska sendiráðið birtist m.a. hér:

https://www.visir.is/g/20212199854d

https://www.visir.is/g/20212199740d

https://www.ruv.is/frett/2021/12/20/motmaelir-medferd-a-assange-vid-breska-sendiradid

https://www.ogmundur.is/is/greinar/fangelsun-og-framsali-julian-assange-motmaelt