Fara í efni

MÆLI MEÐ NEISTUM!

Ég ætla að leyfa mér að mæla með vefmiðlinum neistar.is. Þar eru birtar greinar sem eiga það sameiginlegt að vera áhugaverðar og sérstaklega vel unnar. Ekki nóg með það heldur eru þær gagnrýnar, ganga ekki erinda eins eða neins og oftar en ekki er siglt upp í móti meginstraumi fjölmiðlunar sem því miður er oft á tíðum - óþægilega oft - hlutdræg í þágu auðvalds, innlends og alþjóðlegs.
Á meðal höfunda á Neistum eru þeir Þórarinn Hjartarson og Jón Karl Stefánsson sem báðir birta öðru hvoru greinar hér á síðunni í dálkinum Frjálsir pennar. Ein slík grein eftir Jón Karl er nú efst á síðunni undir þessari fyrirsögn. Hana er einnig að finna á Neistum.
Fleiri góðir rýnendur í samtímann stinga niður penna á Neistum eins og menn geta kynnt sér: neistar.is.