Fara í efni

LÍFEYRISSJÓÐIRNIR HEIM - EN AÐEINS GULLTRYGGÐIR


Lífeyrissjóðirnir hafa svarað kalli ríkisstjórnarinnar um að þeir flytji hluta af eignum sínum, sem vistaðar eru í útlöndum heim til Íslands. Þetta yrði til að styrkja gjaldeyrisforðann og auðvelda ríkinu að standa við skuldbindingar sínar. Ákvörðun lífeyrissjóðanna er ekki án skilyrða. Þau eru reyndar mjög ströng.
 Í fyrsta lagi yrðu fjármunir lífeyrissjóðanna því aðeins fluttir heim að fyrir þá fengjust ríkistryggð skuldabréf.
Í annan stað vilja forsvarsmenn lífeyrissjóðanna vita hvernig bankar og fjármálafyrirtæki ætli að axla sína ábyrgð. Ætla þau að flytja fjármuni heim , selja eignir og beina sjóðum sem þau kunna að ráða yfir til Íslands?
Í þriðja lagi  viljum við vita hvernig fjármununum yrði ráðstafað, til að tryggja að ríkið geti staðið við skuldbindingar sínar . Rynnu þessir peningar inn í almenna púlíu til að lengja dauðastríð fjármálafyrirtækja um nokkrar vikur, eða yrði skilyrt að þeir færu til að standa straum af kostnaði við skuldbindingar hins opinbera?
Þessum spurningum verður ríkisstjórnin að svara í dag ella á að láta það ógert að flytja lífeyrissparnaðinn heim.