Fara í efni

Í ÓRAFJARLÆGÐ FRÁ VERULEIKANUM


Pressan.is
slær upp getgátum Jóns Magnússonar hæstaréttarlögmanns, um að ég og Össur Skarphéðinsson, höfum skipulagt mótmælin gegn stjórnvöldum sem urðu til þess að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hrökklaðist frá völdum.
Jón Magnússon skrifaði: „Áður en átökin urðu hörð höfðu Steingrímur J. Össur og Ögmundur lagt á ráðin um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Nú hefur byltingin étið fyrsta barnið sitt Ögmund Jónasson sem rekinn var úr ríkisstjórninni.
Hvernig stóð á því að óeirðirnar fóru gjörsamlega úr böndum eftir samkomulag þremenninganna?
Sumir segja að þar hafi óeirðaöflin í VG undir forustu heilbrigðisráðherra og skrímsladeildin í Samfylkingunni undir forustu utanríkisráðherra skipulagt aðför að sitjandi stjórnvöldum til að ná fram samstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar. „
Það er ekki nóg með að þetta sé algerlega úr lausu lofti gripið heldur gefur þetta innsýn í hugarheim sem er úr öllu jarðsambandi við veruleikann - í órafjarlægð við hjartsláttinn í samfélaginu. Þessi hugsun byggir á því, að öllu - bókstaflega ÖLLU - hljóti að vera stýrt að ofan. Ekkert geti orðið til - mótast og þróast - í smiðju almennings. Alltaf séu að verki einhverjir stjónmálaplottarar að handstýra fólki - nota það sem verkfæri sín.
Þetta er ekki beinlínis lýðræðislegt viðhorf og byggir ekki á mikilli virðingu fyrir einstaklingnum. Í mínum huga er beinlínis ósvífið að halda þessu fram gagnvart öllu því fólki sem mótmælti hrunstjórninni á sínum tíma.
Þar fyrir utan er þetta beinlínis ósatt. Ég þekki fjöldann allan af fólki - einsog ég held við gerum öll því þarna var þverskurður af þjóðinni - sem tók þátt í þessum mótmælum af eigin hvötum og að því er ég best veit, án þess að nokkur innan veggja Alþingis hvetti til þess.
Auðvitað hefur það gerst í mannkynnsögunni að tilraunir eru gerðar til múgsefjunar; að reynt er að misnota fólk í þágu pólitískra hagsmuna. Slíku er stefnt gegn lýðræðinu og frelsi einstaklingsins.Andstæðingar lýðræðis hafa aldrei átt liðsmann í mér.

frétt Pressunnar: http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/haestarettarlogmadur-skipulogdu-ogmundur-og-ossur-oeirdirnar-til-ad-komast-i-stjorn