Fara í efni

HVAR VERÐUR NÆSTI KVÓTAFUNDUR?

Þótt ekkert sé endanlega ákveðið finnst mér líklegast að næsti kvótafundur í fundaröðinni Gerum Ísland heilt - kvótann heim, verði á Akranesi. Og illa svikinn væri ég ef svo kæmi ekki Þorlákshöfn.
Það get ég þó upplýst að í öllum hlutum landsins hefur verið óskað eftir því að fá þessa fundi til sín. Við þeim óskum verður orðið. En ekki liggur lífið við – aldan þarf sinn tíma til að rísa og það er að gerast. Þar hefur Styrmir Gunnarsson rétt fyrir sér: http://styrmir.is/entry.html?entry_id=2244625