Fara í efni

HVAR ER HALLDÓR Í FRAMBOÐI?

Halldór og umferð - 2
Halldór og umferð - 2

Í framtíðinni verður án nokkurs vafa hugað að nýjum samgöngumáta á þéttibýlissvæðinu á suðversturhorni landsins. Almenningssamgöngur. strætisvagnar, lestir, sporvagnar munu leysa einkabílinn að einhverju leyti af hólmi - ekki alveg, en að nokkru leyti. Þessar breytingar eru í gerjun. Sérstakt framtak á síðasta kjörtímabili til að efla almenningssamgöngur er vísbending um það sem koma skal.  

Þessi framtíð er ekki langt undan.

Framsýnir stjórnmálamenn hljóta að hugsa í nýjum lausnum. Mér sýnist sá ágæti maður, Halldór Halldórsson, sem skipar fyrsta sætið á D-lista, sjálfstæðismanna í Reykjavík  ekki hugsa í nýjum lausnum, bara nýjum hraðbrautum og fyrir ennþá fleiri bíla.

Halldór segist vilja byggja hraðbraut út frá Suðurgötunni í vesturbæ Rekjavíkur yfir Skerjafjörðinn og út á Álftanes, til að taka við bílaumferð af Kópavogs-, Hafnarfjarðar- og Álftanessvæðinu.

Spennandi? Það er eftir því frá hvaða sjónarhóli málið er skoðað. Hafnfirðingar og einhverjir Suðurnesjamenn kunna að hrífast af þessum hugmyndum. Varla Álftnesingar og alls ekki Vesturbæingar í Reykjavík. Alla vega ekki þeir sem búa við Suðurgötuna, Ægissíðuna, Hagana þar uppaf eða í Skerjafirði.   Þarna þekki ég nokkuð vel til. Mér heyrist Halldór Halldórsson ekki sópa að Sjálfstæðisflokknum atkvæðum á þessu svæði með tillögum sínum. Er hann ekki örugglega í framboði í Reykjavík?

Ég skal vissulega taka undir það sjónarmið sem oft er haldið á loft að æskilegt er að hugsa heildstætt fyrir höfuðborgarasvæðið allt saman. En það þarf líka að hugsa með framtíðarhagsmuni í huga. Þá dugir ekkert annað en raunsæi. Við hljótum að huga að nýjum samgöngumáta. Umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.  Ekki bara fjölga bílum. Nema okkur langi til að verða eins og Houston. En þar er Halldór Halldórsson ekki í framboði fremur en í Hafnarfirði.