Fara í efni

HVAÐ SEGJA EIGENDUR SÍMANS UM SKAMMARVERÐLAUNIN?

Fréttabladid haus
Fréttabladid haus
Birtist í Fréttablaðinu 08.01.16.
Um áramótin veitti Viðskiptablað Fréttablaðsins verðlaun fyrir viðskiptaafrek  liðins árs og að sama skapi voru tilnefnd verstu viðskipti ársins.

Ríkisstjórnin fékk hin jákvæðu verðlaun fyrir samkomulag við kröfuhafa þrotabúa bankanna en Arion banki og Síminn ehf, skammarútnefningu fyrir sölu á hlutabréfum í Símanum þar sem bæði bankinn og Síminn féllu á siðgæðisprófi.

Hin fyrri verðlaun læt ég að sinni liggja á milli hluta að öðru leyti en því að áhöld þykja mér vera um það hvort ekki hefði verið nær að sæma hrægammana verðlaunum fyrir hagstæðustu viðskipti ársins fremur en ríkisstjórnina.

Það er hins vegar skammarútnefningin sem ég staðnæmist við. Í stað þess að Arion banki léti hlutabréf sín á opinn markað var byrjað á því, að hætti 2007, að heimila nákomnum og vildarvinum að komast yfir bréf á lægra verði en sýnt var að öðrum myndi bjóðast á markaði. Sú varð og raunin. Á opnum markaði var gengið orðið hærra og þar með virði bréfanna. Hinir nákomnu þurfa ekki lengi að sitja á feng sínum því fljótlega geta þeir selt á makaði og hagnast vel.

Af Símans hálfu vakti athygli að stjórnendur þar á bæ voru í hópi kaupenda. Þar ber ekki síst að horfa til stjórnenda Mílu, sem á að vera fyrirtæki aðskilið Símanum þótt hann sé undir sömu regnhlíf. Með sölunni var Síminn hins vegar nú kominn að hluta til í persónulega eign stjórnenda Mílu! Þessu var að vísu snúið til baka enda dæmafá óskammfeilni. Eftir stendur að í fjárfestingahópi í kringum forstjóra Símans högnuðust menn persónulega á braskinu.

Fjármálaráðherra lýsti því opinberlega að hann teldi þessa sölu hafa verið „klúður" og einn dómnefndarmaður Viðskitablaðsins spurði „hvort hægt væri að klúðra málum meira". Og bætti við, að „helstu leikendur virðast ætla að sleppa vel frá þessum ótrúlega gjörningi en líklega verður einhver skúringakonan rekin enda verður alltaf einhver að axla ábyrgð."

Spurning er hvort hugtakið klúður er ekki heldur kurteist hugtak yfir þetta ferli sem fyrst og fremst skrifast náttúrlega á Arion banka sem stjórnaði sölunni.

En framhjá ábyrgð stjórnenda Símans verður ekki litið og þar með eigenda hans. Líifeyrissjóðirnir eru langstærstu eigendur Símans og fara þar með vald sem lögbundinn sparnaðar launafólks hefur fært þeim í hendur.

Ekki hef ég orðið var við að stjórn Símans hafi verið krafin sagna um þetta mál. Enda ekki skúringakona.

Hitt þykir mér sýnt að lífeyrissjóðirnir þurfa að taka upp gagnrýna umræðu um hvernig farið er með það vald sem eitt hundrað milljarða fjarfestingargeta á ári veitir.

Almennt tel ég að lífeyrissjóðirnir hafi farið vel með vald sitt. En er svo í öllum tilvikum? Þetta mál þyrfti að verða tilefni til gagnrýnnar umræðu um það hvort svo er. Þeir sem vilja lífeyrissjóðunum vel hljóta að verða hvatamenn að slíkri umræðu.
http://eyjan.pressan.is/frettir/2016/01/08/ogmundur-stjorn-simans-ekki-krafin-svara-enda-ekki-skuringakona-gagnrynir-lifeyrissjodina/