Fara í efni

HJÖRLEIFUR VEKUR ATHYGLI Á SÉRSTÆÐRI FEGURÐARSAMKEPPNI

Það eru nánast engin takmörk fyrir því hve langt álsamsteypurnar sem starfa hér á landi ganga í því að kaupa sér velvild - og atkvæði ef því er að skipta. Í fyrirhugaðri kosningu í Hafnarfirði um heimild til handa Alcan til stóraukinna umsvifa hefur álrisinn gengið fram af mörgum með fjásraustri sínum til að fegra eigin málstað. Andspænis álrisanum standa félítil grasrótarsamtök en meirihluti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði  hefur því miður ekki haft vilja eða djörfung til að rétta hlut þessara samtaka!
Hjörleifur Guttormasson, fyrrum alþngismaður og basráttumaður fyrir íslenskri náttúru sendi frá sér pistil í dag um tengt efni. Pistil sinn nefnir Hjörleifur Fjölþjóðahringar í fegurðarsamkeppni. Pistillinn fylgir hér að neðan:

"Íslendingar fá nú á færibandi sýnishorn af vinnuaðferðum fjölþjóðafyrirtækja sem leitast við að kaupa sér umhverfisvæna ímynd til að breiða yfir náttúruspjöll og mengun. Fáeinum dögum fyrir atkvæðagreiðslu um margföldun á umsvifum Alcan í Hafnarfirði er send út tilkynning um að auðhringurinn sé reiðubúinn að greiða fyrir því að raflínur í grennd við álverksmiðjuna verði settar í jörð svo fremi að Hafnfirðingar samþykki nýja 280 þúsund tonna risaálbræðslu við hlið þeirrar gömlu.
Þá sendi Alcoa í gær, miðvikudaginn 28. mars, út fréttatilkynningu á veraldarvefnum þess efnis að fyrirtækið fagni sérstaklega (embraces) ákvörðun Alþingis um að stofna Vatnajökulsþjóðgarð. Þar segir ennfremur að Alcoa hafi um nokkurra ára skeið stutt við stofnun þjóðgarðsins og fylgst náið með undirbúningi að stofnun hans. Vitnað er sérstaklega til orða Tómasar Sigurðssonar forstjóra Alcoa Fjarðaráls sem segir fyrirtækið “lengi hafa stutt við verndun þessa náttúrusvæðis þar sem það er hluti af okkar sjálfbæru hugmyndafræði.” Síðan fylgir löng þula um framleiðslu Alcoa á heimsvísu og klikkt er út með því að Alcoa hafi nýlega fengið útnefningu auðmannaráðstefnunnar í Davos í Sviss (World Economic Forum) sem ein af fremstu sjálfbæru samsteypum á heimsvísu.
Bakgrunnur þessarar hógværu fréttar er sennilega fjárstyrkur að upphæð 20 milljónir króna sem Bernt Reitan aðstoðarforstjóri Alcoa afhenti Sigríði Önnu Þórðardótur umhverfisráðherra 15. maí 2006 og renna skyldi til uppbyggingar þjóðgarðanna í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum.
Það fylgir hins vegar ekki sögunni að skilningur Alcoa á sjálfbærni hefur einkum birst Íslendingum í því að fyrirtækið hljóp undir bagga með íslenskum ráðamönnum til að kom á fót Kárahnjúkavirkjun og hefur síðan með byggingu álbræðslu á Reyðarfirði umturnað austfirsku samfélagi.
Raflínur sem liggja að Fjarðaál-verksmiðjunni kringja nú þorpið á Reyðarfirði. Þar á Alcoa leik á borði þegar fyrirtækinu dettur í hug að stækka verksmiðju sína að bjóðast til að leggja þá gálga í jörðu. 

Meðfylgjandi: Fréttatilkynning Alcoa 28. mars 2007 
 3.28.2007 -
News from:
Alcoa Inc.
Alcoa Embraces Decision on
Vatnajokull National Park
(CSRwire) REYDARFJORDUR, ICELAND & NEW YORK, NY - Alcoa Inc., today announced it embraces the decision of Althing (Parliament of Iceland) to establish Europe's biggest natural reserve. The Vatnajökull National Park will cover a total of 15,000 square kilometres (just under 6,000 square miles). Europe's biggest glacier, Vatnajökull, is fully incorporated in the national park.
Alcoa has for several years supported the creation of and has monitored the preparations for the establishment of the Vatnajökull National Park and its underlying ambitious ideology. "We salute Althing for taking this important step to support the establishment of this unique wilderness national park," said Tomas Sigurðsson, Managing Director of Alcoa Fjardaal in Iceland. "We have long supported protecting this natural reserve as it is part of our sustainability philosophy."
Preparations for the Vatnajökull National Park began as early as in 1999 when Althing passed a parliamentary resolution to establish the park. A bill of law on the national park was passed recently by a large majority of parliamentarians.
Alcoa is the world's leading producer and manager of primary aluminum, fabricated aluminum and alumina facilities, and is active in all major aspects of the industry. Alcoa serves the aerospace, automotive, packaging, building and construction, commercial transportation and industrial markets, bringing design, engineering, production and other capabilities of Alcoa's businesses to customers. In addition to aluminum products and components, Alcoa also markets consumer brands including Reynolds Wrap® foils and plastic wraps, Alcoa® wheels, and Baco® household wraps. Among its other businesses are closures, fastening systems, precision castings, and electrical distribution systems for cars and trucks. The company has 123,000 employees in 44 countries and has been named one of the top most sustainable corporations in the world at the World Economic Forum in Davos, Switzerland. More information can be found at
www.alcoa.com