Fara í efni

HIN ÞÖGLU SVIK

FB logo
FB logo

Birtist í Fréttablaðinu 18.01.08.
Nú þegar frjálshyggjumenn hafa hafist handa um að keyra heilbrigðiskerfið út í einkarekstur er óhjákvæmilegt að fólk beini sjónum sínum að samstarfsflokki Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn, Samfylkingunni og kalli hana til ábyrgðar. Þótt samskiptin í ríkisstjórn gangi greinilega út að gefa hverjum ráðherra frelsi til að fara sínu fram í „sínu ráðuneyti" , þá verður ekki horft framhjá tvennu: Í fyrsta lagi er skipting ráðuneyta á ábyrgð beggja stjórnarflokkanna. Samfylkingin verður að horfast í augu við þá staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn stýrir heilbrigðisráðuneytinu með hennar samþykki og á hennar ábyrgð.  Í öðru lagi breyta ákvarðanir um innbyrðis verkaskiptingu ekki því að gjörðir einstakra ráðherra eru á ábyrgð ríkisstjórnarinnar allrar. Samfylkingin hefur vissulega daðrað nokkuð við hugmyndir um einkarekstur á ýmsum sviðum, einnig í heilbrigðiskerfinu. Þar hefur varaformaður flokksins meira að segja haft sig talsvert í frammi . Á sama tíma hefur Samfylkingin hamrað á því að hún sé félagshyggjuflokkur en ekki flokkur fjármagnseigenda. Á þeirri forsendu veittu margir kjósendur henni brautargengi í síðustu þingkosningum. Nú hafa rök verið færð fyrir því að gjörðir Sjálfstæðisflokksins grafi undan almannareknu heilbrigðiskerfi og styrki einkarekstrarkerfi að sama skapi. Ég þarf að taka á því til að trúa því að Samfylkingin ætli að láta þetta gerast óátalið. Þögn og afskiptaleysi fela í sér afstöðu. Þögn er sama og samþykki segir gamalt máltæki. „Þau eru verst hin þöglu svik, að þegja við öllu röngu", segir í þýðingu Bjarna Jónssonar frá Vogi á gömlu kvæði eftir norska skáldið Arne Garborg. Það eru orð að sönnu. Hvað skyldi kjósendum Samfylkingarinnar finnast um flokkinn sem þeir kusu, hinn þögla félaga þeirra Geirs og Guðlaugs Þórs í ríkisstjórninni?