Fara í efni

GLEÐILEGA PÁSKA


Einhvern veginn finnst manni tilheyra að veður sé fallegt á páskum, eðaldagskrá í RÚV. Hvorugt brást að þessu sinni. Í ofanálag bauð náttúran upp á eldgos  á Fimmvörðuhálsi - vonandi fólki og dýrum að skaðlausu. Áhugi landsmanna á gosinu er ótvíræður. Hann ber ekki aðeins vott áhuga á náttúruundrum heldur líka á landinu okkar.  Þúsundir hafa farið að sjá gosið - nokkuð sem ekki er með öllu hættulaust í nálægð. Á sveimi eru hjálparsveitirnar. Þær gefa okkur öryggistilfinningu og hlýjar hugrenningar.
Ég óska öllum lesendum síðunnar gleðilegra páska.