Fara í efni

GLAÐI SAMGÖNGURÁÐHERRANN

Birtist í Fréttablaðinu 13. júní 2007
Í laugardagsútgáfu Fréttablaðsins var mjög gleðirík frétt um samgöngumál. Í fréttinni var rætt við ýmsa aðila, þar á meðal tvo afar hamingjusama ráðherra, þá Kristján Möller samgönguráðherra sem varla réð sér fyrir kæti og síðan forsætisráðherra, hæstvirtan Geir H. Haarde. Grípum niður í frásögn Fréttablaðsins: „Ég dreg ekki úr því að ég fagna áhuga allra sem vilja taka þátt í samgöngubótum á Íslandi. Því fleiri því betra,“  sagði Kristján Möller samgönguráðherra um orð forvera síns, Sturlu Böðvarssonar sem fagnaði áhuga Faxaflóahafna á að annast fjármögnun og byggingu Sundabrautar. Sturla taldi í mars síðastliðnum að ef samningar tækjust við fyrirtækið væri ekkert því til fyrirstöðu að framkvæmdir hæfust við fyrsta tækifæri. Undir orð hans tók Geir H. Haarde forsætisráðherra og sagði framtak fyrirtækisins lofsvert ... Kristján segir einkaframkvæmd í samgöngumálum spennandi kost: „Því að með nýsamþykktum vegalögum þarf ekki lengur að gera sérstök lög um hverja einkaframkvæmd fyrir sig“.
Þetta er nú aldeilis stórkostlegt. Kristján Möller getur með öðrum orðum ákveðið í samráði við einstaka verktaka að fela þeim vegaframkvæmdir, jafnvel umráð yfir vegasamgöngum án þess að spyrja kóng eða prest. Hann bara ákveður þetta. En það er ekki nóg með það. Hann getur veitt fyrirtækjum heimild til að taka síðan gjald af vegfarendum til að borga brúsann. Eða halda menn að hér séu á ferðinni góðgerðastofnanir? Það þarf eftir sem áður að greiða fyrir framkvæmdirnar og arðinn til fjárfesta. Tveir kostir eru þá í boði. Ríkið borgi framkvæmdaaðilanum beint eða láti vegfarendur greiða toll. Tekið skal fram að þessi deila stendur ekki um ágæti einkaaðila. Allar vegaframkvæmdir Vegagerðarinnar eru boðnar út. Spurningin snýst um það hvort fela eigi einkaaðilum miklu ríkari aðkomu að skattpyngju landsmanna – og peningaveski - en tíðkast hefur. Áður en samgönguráðherra kætist öllu meira má hann vita að við – vegfarendur og væntanlegir greiðendur – viljum hafa hönd í bagga þegar kemur að örlæti ráðherrans á okkar kostnað.