Fara í efni

FJÖLMENNUM Á ÚTIFUND Í DAG!

Palestina 1
Palestina 1

Í dag klukkan 17:00 verður efnt til mótmælafundar vegna voðaverkanna á Gaza fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna á Laufásvegi.

Í tilkynningu frá Félaginu Ísland-Palestína segir að tilefni fundarins  séu „grimmilegar árásir Ísraelshers og fjöldamorð þeirra á palestínskum borgurum á Gaza ströndinni...Bandaríkin eru í lykilstöðu til að stöðva blóðbaðið á Gaza. Félagið Ísland-Palestína krefst þess að Bandaríkjamenn með Obama forseta í fararbroddi stöðvi fjöldamorðin í Palestínu." 

Kröfur fundarins:

- STÖÐVUM BLÓÐBLAÐIÐ

- RJÚFUM HERKVÍNA

- OBAMA, STOP THE MASSACRE! 

- ALÞJÓÐLEGA VERND

- FRJÁLS PALESTÍNA

„Ræðumenn verða Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Ahmed Abunahla, jafnréttisnemi við HÍ, frá Gaza.

Fundarstjóri Sveinn Rúnar Hauksson læknir, formaður FÍP."