Fara í efni

FJALLAÐ UM HERNAÐINN GEGN KÚRDUM UTAN LANDAMÆRA TYRKLANDS

Talsmaður Kúrda til langs tíma, Seckin Guneser, situr fyrir svörum í Friðarhúsi í kvöld og skýrir stöðu mála í landamærahéruðum sem liggja að Tyrklandi, í norð-vesturhluta Íraks annars vegar og norðanverðu Sýrlandi hins vegar. Samtök hernaðarandstæðinga bjóða upp á þessa samræðu og hvet ég fólk til að koma og kynna sér þessi mál sem því miður fá litla sem enga umfjöllun í fjölmiðlum.

Friðarhús er á Njálsgötu 87 (á horni Njálsgötu og Snorrabrautar). Nánar má sjá um fundinn á heimasíðu Samtaka hernaarandstæðinga: https://fridur.is/

og nánar hér: https://fridur.is/frasogn-fra-kurdistan/