Fara í efni

FAGRA ÍSLAND - DAGUR ÞRJÚ

Birtist í Fréttablaðinu 07.06.07.
Þegar Samfylkingin kynnti umhverfis- og virkjanastefnu sína undir yfirskriftinni Fagra Ísland var sérstaklega til þess tekið að á komandi fimm árum yrði hlé á stóriðjuframkvæmdum í landinu. Á degi tvö í stjórnarsamstarfinu kom svo í ljós að álitamál varðandi Þjórsárver og Norðlingaölduveitu höfðu ekki verið rædd í stjórnarmyndunarviðræðunum á þann hátt að lyktir fengjust og niðurstaða. Um það báru misvísandi yfirlýsingar frá hendi oddvita ríkisstjórnarflokkanna vitni. Ef um hefði verið að ræða pólitískt hjartans mál má ætla að málið hefði verið til lykta leitt. En þegar á degi tvö í ríkisstjórnarsamstarfinu hafði semsé komið í ljós að Fagra Ísland hafði verið látið sitja á hakanum. Nú er runninn upp þriðji dagurinn þar sem Fagra Ísland kemur upp í hugann. Gengið hefur verið frá orkusölusamningi vegna nýs álvers í Helguvík og ná skuldbindingar orkusala aldarfjórðung fram í tímann. Orkusalarnir eru Hitaveita Suðurnesja og Orkuveita Reykjavíkur. Ekki er vitað um neina tilburði af hálfu ríkisstjórnarinnar til að hafa áhrif í þátt átt að fá þessum áformum breytt og er það óræk staðfesting á því að stóriðjustefnan er hér á fullri ferð og greinilega enginn pólitískur vilji fyrir öðru. Ákvarðanir sem orkufyrirtækin taka varða landsmenn alla. Þær skipta máli í efnahagslegu tilliti að ógleymdri náttúrunni því virkja þarf til að afla orkunnar.  Jafnvel þótt beisluð orka væri fyrir hendi er ljóst að þörfin fyrir orku fer vaxandi – aðrir nýtingarmöguleikar en stóriðja skjóta upp kollinum í vaxandi mæli og er það ótrúleg skammsýni að binda orku landsmanna áratugi fram í tímann í þágu erlendra stórðiðjufyrirtækja. Allt þetta lætur hinn glaði Samfylkingarmeirihluti á Alþingi sér í léttu rúmi liggja. Nú er spurningin hvað gerist á degi fjögur. Verður Fagra Íslandi áfram fórnað til að svala löngunum og þrám til að verma sætin í Stjórnarráði Íslands? Ég geri ráð fyrir að þeim sem kusu Samfylkinguna út á Fagra Ísland sé ekki skemmt og vel gæti svo farið að nú færu að stirðna brosin hinna brosmildu.