Fara í efni

FAGRA ÍSLAND – DAGUR FIMM

Birtist í Fréttablaðinu 29.06.07.
Samkvæmt umhverfisstefnu Samfylkingarinnar, sem ber heitið Fagra Ísland, er ekki gert ráð fyrir frekari stóriðjuuppbyggingu þar til heildstæð áætlun um náttúruvernd liggur fyrir. Í kosningabaráttunni var hamrað á því að næstu fimm árin yrði stóriðjustopp ef Samfylkingin kæmist til valda. Nú bregður svo við að eftir að Samfylkingin tekur við iðnaðar- og umhverfisráðuneytum í nýrri ríkisstjórn hefur atgangurinn í stótiðjumálum aukist fremur en hitt. Hver stóriðjudagurinn hefur komið á fætur öðrum. Strax á degi tvö kom í ljós að allt var ófrágengið varðandi friðun Þjórsárvera, á þriðja stóriðjudeginum var undirritaður orkusamningur til álvers í Helguvík, á fjórða degi kom í ljós að Samfylkingin var tilbúin að virða niðurstöðu íbúakosninga í Hafnarfirði að vettugi en nú á stóriðjudegi fimm er það Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, sem á senuna. Skýringuna er að finna í viðtali á Stöð tvö 25. júní  sl. Þar segir umhverfisráðherrann enga ástæðu til þess að ríkisstjórnin skipti sér af því hvernig Landsvirkjun svari ósk Alcans um framlengingu á raforkusamningi sem gerður var vegna stækkunar í Straumsvík! Í innagangi að fréttinni vekur fréttastofan athygli á því að svar Landsvirknunar "gæti ráðið miklu um virkjana- og stóriðjuframkvæmdir á landinu á næstu árum." Í viðtalinu segist umhverfoisráðherrann ekkert hafa kynnt sér málið enda sé þetta " bara samningar á milli Landsvirkjunar og fyrirtækisins..."  Kristján Már Unnarsson, fréttam.: En finnst þér ekki að ríkisstjórnin eigi að koma að þessu? Þórunn Sveinbjarnardóttir: Hvers vegna ætti hún að gera það? Kristján: Þetta snertir virkjanir og hugsanlega álver á nýjum stað? Þórunn Sveinbjarnardóttir: Landsvirkjun og Alcan eru bara fyrirtæki á markaði eins og önnur fyrirtæki og þau verða bara að ná sínum samningum eins og aðrir." Svona talar umhverfisráðherra Samfylkingarinnar, sem kosinn var á þing með fyrirheitum um stóriðjustopp í fimm ár. Að sjálfsögðu veit ráðherrann að Landsvirkun er ekki "bara fyrirtæki á markaði". Landsvirkjun er í reynd hluti af ríkisvaldinu. Hún er í eigu þjóðarinnar og lýtur forræði kjörinna fulltrúa hennar, þar á meðal umhverfisráðherra og annarra handhafa stefnu Samfylkingarinnar á Alþingi; þeirra sem kjörnir voru í nafni Fagra Íslands.