Fara í efni

ESB OG LÝÐRÆÐISRÉTTURINN

Fréttabladid haus
Fréttabladid haus

Birtist í Fréttablaðinu 29.08.12.
Þorsteinn Pálsson skrifar greinar í Fréttablaðið um helgar. Greinar hans eru mjög áþekkar og  jafnan þar að finna sömu stefin. Eitt slíkt stef er að VG sé tvísaga í aðildarviðræðunum við ESB; sé fylgjandi aðild innan veggja Stjórnarráðsins en andvígt utandyra. Þjóðin hafi orðið þess vitni, skrifar hann nýlega, þegar ráðherrar VG stóðu „utan veggja Stjórnarráðsins og lýstu því yfir að rétt væri að endurmeta umsókn Íslands vegna óróa í peningamálum á evrusvæðinu. Um leið ítrekuðu þeir andstöðu sína við aðild og upptöku evru. Þetta lýsti grundvallarágreiningi stjórnarflokkanna í sama máli. Annað hvort eru ráðherrar VG að segja ósatt sitjandi innan veggja Stjórnarráðsins eða standandi utan þeirra."
Ekki er þetta nú svo. Á fundi ríkisstjórnarinnar 13. júlí sl. komu samningsamarkmið Íslands í peningamálum til umfjöllunar, svo og aftur 21. ágúst eftir þessi svikabrigslaskrif Þorsteins Pálssonar, sem af hálfu stjórnvalda gegnir trúnaðarstöðu í ESB ferlinu. Hið rétta er að þrír fyrirvarar komu fram á þessum fundum: Varðandi afnám gjaldeyrishafta; varðandi inngöngu í ERM II gjaldeyrissamstarfið og varðandi upptöku evru.
Sá sem ekki vill ganga í ESB er varla áhugasamur um upptöku evru og hélt ég að Þorsteini Pálssyni væri kunnugt um afdráttarlausa afstöðu VG í þeim efnum. VG gerði fyrirvara um málið í heild sinni og hefur frá upphafi haldið því opnu að endurskoða málið ef aðstæður breyttust. Það hafa þær svo sannarlega gert.
Samfylkingin hafnaði því í aðdraganda stjórnarmyndunar að spyrja þjóðina hvort hún vildi sækja um aðild. En réttur þjóðarinnar verður ekki af henni tekinn endalaust, ekki síst þegar aðstæður breytast. Það stóð aldrei til að draga viðræður á langinn þar til ESB og sambandssinnar hér á landi finna heppilegri tímapunkt en nú er í augsýn til að ljúka málinu. Samkvæmt skoðanakönnunum er yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga andvígur því að ganga í ESB. Það er ekkert undarlegt því Evrópa logar. Að sjálfsögðu á þjóðin rétt á því að vera spurð hvort hún vilji inn í eldhafið.
Það verður að gerast áður en þetta kjörtímabil er úti. Þá verða kaflaskil.