Fara í efni

ENN UM NATÓ

Enn vil ég vekja athygli á samræðuþáttum Rauðs raunveruleika á Samstöðinni þar sem Karl Héðinn Kristjánsson ræðir við sagnfræðinginn Tjörva Schiöth um sögu NATÓ. Þetta er þakkarvert framtak. Því meira sem fjallað er um söguna þeim mun betur verðum við í stakk búin að ræða um samtímann. Ég hvet fólk til að hlusta á þessa fróðlegu þætti. Þátt númer tvö um NATÓ má heyra hér: https://www.youtube.com/watch?v=PFATin80pfM