Fara í efni

BYRJAÐ AÐ STELA?

Frettablaðið
Frettablaðið

Birtist í Fréttablaðinu 22.05.14.
Það sem ég hef óttast mest af hálfu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er að hún steli af þjóðinni eignum hennar. Sporin hræða. Skyldu menn almennt  gera sér grein fyrir því að þrátt fyrir allt bölmóðstalið á sínum tíma, báru ríkisbankarnir sig alla tíð bærilega og voru fullkomlega sjálfbærir. Í byrjun tíunda áratugarins kom að vísu tímabundið framlag úr ríkissjóði  til Landsbankans, en það var að fullu greitt til baka. Óþarfi er að fjölyrða um hvað einkavæddir bankarnir kostuðu síðan þjóðina. Menn stigu einkavæðingar- og sölu skrefin ætíð lævíslega. Þannig átti aðeins að hlutafélagavæða Landsímann á sínum tíma - „alls ekki selja."
Sömu sögu er að segja að sölu bankanna. Nú er Landsbankinn aftur kominn í eigu ríkissjóðs og byrjaður að pumpa milljarðatugum inn í sameiginlega sjóði landsmanna í formi arðs. Þá vitum við að þess er skammt að bíða reynt verður að hafa þessa eign af okkur. Sanniði til! Reyndar er það orðið mest aðkallandi verkefni samtímans að umturna fjármálakerfinu - þar með talið Landsbankanum - þannig að það vinni í þágu almennings en ekki gegn.
Og auðvitað mun verða reynt að verða við kröfu gráðugra fjárfesta sem vilja eignast Landsvirkjun. Samkvæmt rannsókn fjárfesta  á fýsileika þess að leggja raforkukapal til Evrópu gæti hann gefið Landsvirkjun fjörutíu milljarða í arð á ári, það er að segja ef við yrðum nógu dugleg að eyðileggja náttúrperlur okkar fyrir orkusölu til soltins Evrópumarkaðs. Fjárfestingin yrði að vísu fimm hundruð milljarðar - en það myndu langtímafjárfestar ekki setja fyrir sig.
Og auðvitað verður þetta svona nema almenningur stoppi stjórnvöld. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðaherra, er nú búinn að lýsa því yfir að hann vilji selja Landsvirkjun. Bara pínulítið - og til góðra fjárfesta - lífeyrissjóðanna. Allt samkvæmt gömlu formúlunni að fara hægt að þjóðinni. Og lífeyrissjóðirnir, skyldu þeir vera reiðubúnir að láta hafa sig í skítverkið? Vonandi ekki sá sem ég greiði til.
Reynslan erlendis  af fjárfestingum lífeyrissjóða í stoðkerfum samfélagsins er alla vega. Eitt er þó sammerkt með þeim. Enginn munur er á lífeyrissjóðum sem fjárfestum og öðrum að því leyti að þeir vilja hámarksarð af eign sinni ekki síður en aðrir og eru reiðubúnir að selja og braska ekkert síður en aðrir. Arður Íslendinga af Landsvirkjun á að liggja í lágu orkuverði. Með sölu Landsvirkjunar yrðu múraðir inn rangir hagsmunir; hagsmunir sem lægju í því að virkja sem mest og selja orkuna sem hæst.