bjorn.is, Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og lýðræðið
Birni Bjarnasyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks og dómsmálaráðherra er mikið niðri fyrir á vefsíðu sinni, bjorn.is, um frumvarpið sem ríkisstjórnarflokkarnir eru að þröngva í gegnum þingið um lífeyrisréttindi þingmanna, ráðherra og hæstaréttardómara. Björn telur að málsmeðferð frumvarpsins hafi sýnt fram á að stjórnarandstöðuflokkarnir séu ekki samstarfshæfir í ríkisstjórn. Orðrétt segir Björn Bjarnason; "Þegar ég heyrði fyrst um frumvarp þetta rætt nú í vikunni, var það kynnt á þann veg, að um samkomulagsmál væri að ræða milli formanna stjórnmálaflokkanna og forsenda þess, að frumvarpið yrði lagt fram, væri stuðningur við það í öllum þingflokkum, eins og venja er, þegar lögð eru fram mál af þessum toga. Jafnframt var mér skýrt frá því, að lengi hefði verið um það rætt af hálfu forráðamanna stjórnarandstöðunnar, að stöðu þeirra ætti að viðurkenna með launabundinni umbun."
Björn leggur samkvæmt þessu áherslu á að "um samkomulagsmál hafi verið að ræða" og "forsenda þess, að frumvarpið yrði lagt fram, væri stuðningur við það í öllum þingflokkum." Svona einfalt er málið í huga Björns Bjarnasonar. Hann virðist líta svo á að málið hafi verið afgreitt. Það var nefnilega búið að segja Birni Bjarnasyni og félögum hans í þingflokki Sjálfstæðisflokksins að málið hafi verið rætt við formenn allra flokka og hann dregur þá einföldu ályktun að öllum hljóti að hafa verið sagt hvaða afstöðu þeir ættu að hafa. Þessu virðist hann vanur úr eigin flokki. Og áfram segir á bjorn.is:
"Traust er forsenda þess, að samstarf takist milli manna í stjórnmálum eins og á öðrum vettvangi. Í þessu máli sannaðist enn, að stjórnarandstöðunni er ekki unnt að treysta."
Við þennan tón kvað einnig hjá þingmönnum Framsóknarflokksins í umræðu um þetta þingmál. Einnig þeir höfðu fengið í hendur frumvarp volgt úr ljósritunarvélinni undir kvöld á miðvikudag. Þegar í stað virðast allir þingmenn flokksins hafa verið málinu sammála frá upphafi til enda. Og í pontu stigu þeir hver á fætur öðrum og sögðu stjórnarandstöðuna "óstjórnhæfa". Ástæðan væri sú hversu óhlýðnir þingmenn stjórnarandstöðunnar væru, þeir létu ekki stýrast af samkomulagi formanna sinna. Öðru máli gegndi um stjórnarflokkana, þar stæði allt sem stafur á bók!
Þetta þykir mér bera vott um ótrúlegan skort á sjálfsvirðingu þingmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þeir líta á það sem kost í stjórnmálum að lúta valdi, vísa eigin dómgreind til hliðar og fylgja foringjum að málum gagnrýnislaust. Nú verður skiljanlegra hvers vegna Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson hafa komist upp með allt ruglið. Þeim er einfaldlega hlýtt gagnrýnislaust, hvort sem það heitir Kárahnjúkavikrjun, einkavæddur gagnagrunnur á heilbrigðissviði, samningsrof við öryrkja, einkavinavæðing og nú síðast þetta lífeyrisfrumvarp.
Hjá okkur í Vinstrihreyfingunni grænu framboði horfir þetta öðru vísi við. Við kappkostum að vera lýðræðislegur stjórnmálaflokkur. Í þessu tilviki er tiltekið lagafrumvarp borið undir formann flokksins. Hann kveðst vera sammála ýmsum meginforsendum frumvarpsins en lýsir þó efasemdum um tilteknar greinar, einkum þær sem snúa að hans eigin kjörum, tímasetningu og málsmeðferð. Jafnframt kemur fram að mjög eindregin andstaða muni koma fram úr röðum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs við frumvarpið og alla þá hugmyndafræði sem það hvílir á. Um þetta getur undirritaður borið vitni.
Nú ber að hafa það í huga að málið var kynnt undir ströngum trúnaði af hálfu guðferða þess. Í ljósi þess spyr ég: Hvernig er hægt að ætlast til þess að allir þingmenn styðji málið samstundis og það kemur fram án þess að hafa kynnt sér efni þess? Talsmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru í reynd að segja okkur að nánari skoðun mála gerist ekki þörf því þeir hafi ákveðið fyrir hönd flokksmanna sinna hver niðurstaðan verði!
Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna ætluðst hins vegar til að þeim gæfist tækifæri til að kynna sér málið og taka síðan málefnalega afstöðu til málsins sjálfir á eigin forsendum. Þetta eru eðlileg vinnubrögð og forsenda þess að þinginu sé treystandi. Sú þýlyndisstefna sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur krefjast af þingmönnum sínum skýrir hve margar illa ígrundaðar ákvarðanir hafa verið teknar á síðustu kjörtímabilum.
Vel má vera að formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks geti treyst hvor öðrum að rugga ekki bátnum um of og stofna þannig völdum hvors annars í hættu. Það er þetta sem bjorn.is á við þegar staðhæft er að "traust" þurfi að ríkja á milli stjórnmálaflokka. Það þýðir í reynd að hafa á að skipa liði sem gerir það sem því er sagt. Öðru máli gegnir um hina sem vilja skoða málin á ígrundaðan hátt og taka síðan yfirvegaða afstöðu. Slíkt fólk er það sem bjorn.is og samstarfsfélagar hans í Framsóknarflokknum telja vera "óstjórnhæft."