Fara í efni

ANDSTAÐA VIÐ STÉTTARFÉLÖG

Birtist í Fréttablaðinu 29.12.06.
Einkavæðing hefur sjaldnast gengið áfallalaust. Þó er misjafnt hve klaufsk yfirvöldin eru við markaðsvæðingu opinberrar starfsemi. Nýjasta dæmið er fyrirtækið Matís ohf. Það er stofnað upp úr Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknum á Keldnaholti og rannsóknarstofu Umhverfisstofnunar. Hlutabréf er eitt eins og fyrri daginn enda hlutaféð allt í eigu ríkisins og starfsmenn því strangt til tekið eftir sem áður í þjónustu ríkisins. Það eina sem kemur til með að breytast eru réttindi starfsmanna þegar til lengri tíma er litið.
Við sambærilegar aðstæður hafa stéttarfélögin reynt að lágmarka skaðann og iðulega hefur tekist að ná rammasamkomulagi um ýmsa grunnþætti. Í því sambandi má nefna Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í burðarliðnum er samkomulag SFR við hlutafélagavætt RARIK. Eitt hefur reyndar alltaf staðið útaf en það eru lífeyrismál starfsmanna því fram til þessa hafa hlutafélagavæddar stofnanir neitað nýráðnum starfsmönnum um aðild að A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins enda þótt félagsmönnum í BSRB, BHM og KÍ sé heimill aðgangur að deildinni lögum og reglum samkvæmt.
Enda þótt óskiljanleg kergja sé í flestum stjórnum hlutafélagavæddra fyrirtækja gagnvart starfsmönnum og stéttarfélögum virðist stjórn Matís ohf ætla að slá flest fyrri met. Félagið neitar nefnilega að gera rammasamkomulag sem vísar inn í framtíðina við stéttarfélög hins nýja fyrirtækis. Friðrik Friðriksson, formaður stjórnar Matís ohf, lýsti því yfir á fundi með starfsmönnum skömmu fyrir hátíðar að ekki stæði til að leggjast yfir kjarasamningsgerð með stéttarfélögum. Þess í stað hafa starfsmenn verið króaðir af einn og einn þar sem þeim hefur verið boðið að skrifa undir ráðningarsamninga sem forsvarsmenn stéttarfélaganna segja vera afar loðna. Friðrik Friðriksson getur státað af því að vera fyrsti formaður Frjálshyggjufélagsins. Það félag varð til á níunda áratug síðustu aldar og var eitt helsta áhugamál félagsmanna að grafa undan verkalýðshreyfingunni. Getur verið að Friðrik Friðriksson hafi nú loksins komist í aðstöðu til að láta hugsjónir sínar rætast? Hvað segir handhafi hlutabréfsins í Matís ohf, Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra? Varla er hann án ábyrgðar í þessu máli?