Fara í efni

ABBAS Á ÍSLANDI OG AMNESTY INTERNATIONAL


Í dag átti Mahmoud Abbas, „forseti „ Palestínu  fund með forseta  Íslands, utanríkisráðherra og formönnum þingflokka. Þeir síðastnefndu sóttu hádegisverðarboð forseta Íslands á Bessastöðum. þar var ég á meðal sem fulltrúi Vinstrhreyfingarinnar græns framboðs. Á Bessastöðum  fóru fram fróðlegar og lærdómsríkar umræður enda voru með Abbas í för helstu samningamenn stjórnar hans gagnvart Ísrael og bakhjarli þeirra, Bandaríkjastjórn. Fundurinn var mér fróðlegur og lærdómsríkur. Í samningaliði Abbasar eru mjög kröftugir menn og gaman á að hlýða.

Hvað sjálfan mig varðar gafst mér tækifæri að koma sjónarmiðum mínum á framfæri gagnvart þróun mála í Palestínu, sem ég tel að hafi ekki verið í anda lýðræðis heldur fyrst og fremst á forsendum ísraelskra stjórnvalda, sem flestum öðrum betur kunna þá list að deila og drottna. Það hafa Ísraelar komist upp með í skjóli Bandaríkjamanna og þeirra ríkja sem dregið hafa taum þeirra, þar á meðal Íslands.  Því miður hefur engin breyting orðið þar á með nýrri ríkisstjórn.

Fyrir heimsóknina fór  Íslandsdeild Amnesty International þess á leit við íslensk stjórnvöld, svo og alla þá sem kæmu til með að ræða við Abbas og fylgdarlið hans,  að taka til umræðu mál hins 23 ára gamla Tha'er Mahmoud Husni Rmailats, sem dæmdur hefur verið til dauða í Palestínu og þess óskað að Mahmoud Abbas skrifi ekki undir aftökuskipun hans.  Þá fór Amnesty International fram á afnám dauðadóms og hvetur Palestínumenn, hvort sem er úr Fatah hreyfingunni eða Hamas að virða mannréttindi í hvívetna.  

Ég varð við ákalli Amnesty International og tók upp mál hins dauðadæmda manns við  Mahmoud Abbas í viðræðum við hann á Bessastöðum. Fram hefur komið í fréttum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hafi gert slíkt hið sama á fundi með Abbas síðar um daginn. Er það vel. Hins vegar er ósköp dapurlegt að fylgjast með því hvernig Íslendingar lötra þá slóð sem Washington vísar þeim í málefnum Palestínu sem öðrum alþjóðamálum.

Þá má ekki gleyma því að stjórn  Mahmouds Abbasar er ekki lýðræðislega kjörin heldur situr að völdum á forsendum og með stuðningi Ísraela og Bandaríkjastjórnar.

Eftirfarandi er bréf Amnesty International til ríkisstjórnar Íslands:

Vegna heimsóknar  Mahmoud Abbas forseta palestínsku heimastjórnarinnar vill Íslandsdeild Amnesty International vekja athygli á þeim mannréttindabrotum sem viðgangast á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna. Samtökin hafa miklar áhyggjur af þeim brotum sem yfirvöld bæði á Gaza og Vesturbakkanum bera ábyrgð á.
 
Átökin á síðustu misserum milli stuðningsmanna Fatah og Hamas tengjast að hluta þeirri lögleysu og því refsileysi sem hefur viðgengist á sjálfstjórnarsvæðunum. Stríðandi fylkingar Fatah og Hamas hafa gerst sekar um alvarleg mannréttindabrot og brot á alþjóðalögum. Bæði Fatah og Hamas verða að stöðva hefndaraðgerðir, árásir og mannrán og tryggja að öryggissveitir og vopnaðar sveitir undir þeirra stjórn, hvort sem er á Vesturbakkanum eða á Gaza  svari til saka vegna mannréttindabrota.
 
Amnesty International hefur gagnrýnt Hamas fyrir að grípa í sífellt ríkari mæli til geðþóttahandtaka og pyndinga síðan samtökin komust til valda á Gaza í júní  á síðasta ári.  Hamas samtökin eru einnig ásökuð um að leyfa sveitum sínum að ráðast á friðsamlega mótmælendur og fréttamenn. Amnesty International hefur einnig greint frá því að sveitir á vegum Mahmoud Abbas forseta beri ábyrgð á  geðþóttahandtökum þúsunda stuðningsmanna Hamas. Amnesty International hefur gagnrýnt harðlega það refsileysi sem felst í því að ekki er gripið til  neinna aðgerða gegn Fatah-liðum sem eru ábyrgir fyrir mannránum, íkveikjum og annars konar árásum.
 
Amnesty International krefst þess að leiðtogar bæði Fatah og Hamas grípi til aðgerða til að binda enda á vítahring refsileysis sem kyndir undir brot eins og geðþóttahandtökur, mannrán, pyndingar og illa meðferð að hálfu hersveita þeirra.
 
Fjöldi Palestínumanna sem grunaðir eru um að hafa aðstoðað ísraelsku leynilögregluna hefur verið tekinn af lífi án dóms og laga af vopnuðum palestínskum hópum. Yfirvöld á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum hafa látið undir höfuð leggjast að rannsaka þessi morð. Palestínsk yfirvöld hafa ekki sýnt neinn vilja til að tryggja virðingu fyrir lögum og rétti. Amnesty International hefur ítrekað farið fram á að palestínsk yfirvöld rannsaki fjölda „mannshvarfa" og mannrána sem viðgangast, sérstaklega á Gaza-svæðinu. Yfirvöld hafa hunsað þær beiðnir og enginn hefur verið sóttur til saka. Það refsileysi sem umlykur aðgerðir vopnaðra hópa á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum er mikið áhyggjuefni. Refsileysið sem vopnaðir hópar njóta viðheldur og ýtir undir ofbeldi og glæpi á svæðinu en yfirvöld hafa ekki tryggt lög og rétt. Refsileysismenningin þarf að víkja fyrir skýrri ábyrgðarskyldu og virðingu fyrir mannréttindum.  

Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem tengjast Fatah bera ábyrgð á alvarlegum mannréttindabrotum. Hundruð einstaklinga sem grunaðir eru um stuðning við Hamas hafa verið handteknir, pyndaðir og haldið án dóms og laga,

Íslandsdeild Amnesty International hvetur yður til að taka þessi mál upp í viðræðum yðar við Mahmoud Abbas og stuðla þannig að því að stjórn hans vinni gegn refsileysi, bindi enda á pyndingar, tryggi lögfestu og afnemi dauðarefsingar.

Með þessu bréfi fylgir nýleg skýrsla Amnesty International ásamt aðgerðabeiðni vegna yfirvofandi aftöku hins 23 ára gamla Tha´er Mahmoud Husni Rmailat. Íslandsdeild Amnesty International hvetur yður til að taka upp mál hans í viðræðum við Mahmoud Abbas og fara þess á leit að hann staðfesti ekki dauðadóminn og stöðvi aftökur á Vesturbakkanum.

Virðingarfyllst
 
 Jóhanna K. Eyjólfsdóttir
Framkvæmdastjóri
Íslandsdeildar Amnesty International

 

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Íslandsdeildar Amnesty International