Gluggi að innri hnignun Vestursins
Við höfum vikum saman lesið um og horft á misgjörðir Jeffrey Epstein og sóðalíferni elítuvinanna kringum hann. Við höfum síðustu árin talað nokkuð um „hnignun Vestursins“ og er þá helst átt við geopólitík, og oft vísað í undanhald Vestusins fyrir framsókn Kína og nýrra iðnríkja. Það sem hér er horft upp á er þó öllu heldur það sem kalla verður „innri hnignun” eða „úrkynjun” Vestursins. Vestrænnar elítu. Sums staðar, s.s. í Bretlandi og Noregi hefur mál þetta náð að vera fyrsta forsíðumál vikum saman.
Þannig að Epstein-skjölin skaka fólk. En hvað segja skjölin okkur ? Það fer eftir augunum sem horfa. Og það fer eftir því hvað við veljum að skoða í hinu mikla skjalamagni.
Samkvæmt fjölmiðlum meginstraumsins eru Epstein-skjölin gluggi þar sem sést inn á einkaklúbb margra hinna ríkustu og voldugustu sem stunda þar öðru fremur barnaníð eða kynferðislega misnotkun stúlkna, gjarnan barnungra. Nógur er skandallinn og andstyggðin yfirgengileg. Gögnin hafa legið fyrir a.m.k. í sjö ár (frá 2019) og þó hafa alls engir í Bandaríkjunum hingað til verið dæmdir eitt eða neitt fyrir – ekki einu sinni ákærðir (nema Ghislaine Maxwell lagskona Epsteins).
Barna-og unglingamisnotkunin tengist auðvitað ónátturu/barnagirnd Epsteins sjálfs. Á hinn bóginn: hinn mikli fókus á brenglað kynlíf tengist jafnframt starfsaðferð Epsteins. Lúksusvillan hans á Manhattan var útbúin með leynilegum myndavélum í öllum herbergjum. Fyrir hvern? Myndir af vafasömum kynlífsathöfnum og slíkt hneykslunarefni eru tæki til kúgunar. Til fjárkúgunar vissulega, en ekki síður til kúgunar og áhrifavalds í pólitík, ef eitthvert pólitískt afl hefur af því hagsmuni, og vill borga fyrir.
Gluggi inn á tengsla- og valdanet hinna ríkustu og voldugustu
Mesta vægi Epstein-skjalanna liggur samt ekki að mínu áliti í þessum afhjúpuðu misgjörðum og ónáttúru fína pakksins. Heldur liggur það í því að vera gluggi inn á tengslanet og valdanet hinna ríkustu og voldugustu á Vesturlöndum, net sem Jeffrey Epstein var hluti af og margir vilja nú kalla „the Epstein Class“. Skjölin sýna líka pólitískar áherslur þessarar sömu valdaelítu á umræddu tímabili sem var einkum tveir áratugir 21. aldar.
Ég hef lesið og hlustað á allnokkrar úttektir á skjalasafni Jeffrey Epsteins, frá nokkrum mismunandi hliðum. Framlag og starf Epsteins var einkum það að miðla tengslum, tengslum vegamótum þriggja meginsviða: a) tengslaneti efstu elítunnar innbyrðis b) fjármálageirans og c) leyniþjónustu.
Í nýlegu samtali ræddu þeir George Galloway og Chris Hedges þetta hlutverk Epsteins sem tengslamiðlari.
George Galloway: „Epstein, þetta er maður í miðju alls og allir sem voru eitthvað í þeim hluta stjórnmálanna tengdust Epstein á einhvern hátt. Meira að segja fyrrverandi félagi okkar, Noam Chomsky, var í rúminu hjá honum, í óeiginlegri merkingu. Epstein var þátttakandi í mörgum alþjóðlegum sviðsverkum, í Úkraínu, Sómalíu og í hugsanlegu valdaráni gegn Pútín. Hann var meira að segja búinn að velja frambjóðanda til að bjóða sig fram til forseta Rússlands. Þetta var mjög mikilvægur maður sem virtist rísa upp úr engu. Hvað var hann? Hver var hann?
Chris Hedges: „Það er einmitt gátan. Hann er ómenntaður. Hann lauk aldrei háskólanámi – sem þýðir reyndar ekki að maður sé ómenntaður – en hann var ekki vel menntaður. Maður sér að hann getur varla skrifað ensku, sífelldar málfræði- og stafsetningarvillur. Og það hafa farið fram rannsóknir á uppruna umtalsverðra auðæfa hans. Augljóslega kom stór hluti þeirra frá Leslie Wexler eiganda Victoria's Secret [bandarískur miljarðamæringur, zíonisti og stofnandi Leadership Initiative for Israelis], en kannski líka úr fleiri áttum... Ég held að það sem þessi Epstein-skjöl leiði í ljós sé að það er til spillt og siðlaus alþjóðleg valdastétt sem hefur skapað klúbb sem hefur útilokað okkur hin. Eitt af því sem sló mig við lestur tölvupóstanna er hversu siðspillt þetta fólk er, því við fáum annars ekki innsýn í einkalíf þess. Það hefur lögfræðinga og kynningarfulltrúa og alls kyns leiðir til að skapa ímynd út á við sem er í algerri motsögn við siðferðisbresti þeirra, það er það sem þessir tölvupóstar afhjúpa. Þeir sýna okkur ekki bara bandarísku stjórnmálastéttina, heldur líka þá bresku, norsku konungsfjölskylduna, bresku konungsfjölskylduna, frá Miðausturlöndum og hvaðan sem er. Þetta er milljarðamæringastéttin og þjónar hennar sem því miður stjórna heiminum... Þeir eru nú í óða önn að koma á fót alræðisríkjum.“
Hvað snertir tengsl valdaelítunnar við fjármálageirann má fyrst nefna að Epstein gerðist meðlimur hugveitunnar Trilateral Commission ungur að árum árið 1985. Honum var kippt þarna inn af sjálfum David Rockefeller sem hafði stofnað Trilatral Commission árið 1973 með þeim Zbigniev Brzezinzki og Kissinger („félagssvæði” nefndarinnar var N-Ameríka, V-Evrópa og Japan). Annað kemur kemur fram í skjölunum, í bréfaskiptum við Israela kynnir Epstein sig svona: „I work for the Rothschilds“, sem er ein voldugasta bankafjölskylda heims (gyðingleg að auk). En á 21. öld hafa Rockefeller og Rothschilds að miklu leyti sameinast, sem hefur auðveldað manninum að þjóna báðum.
Það skal loks nefnt hér að Epstein varð skömmu síðar einnig meðlimur af The Council of Foreign Relations og var þá – þegar það „ráð“ bættist við Trilateral – kominn rækilega inn í hina raunverulegu valdaelítu í Bandaríkjunum.
Trilateral Commission
Meginhugsunin að baki Trilateral var sú, að Rockefeller vildi efla áhrif slíkra elítuklúbba sem sameinuðu kaupsýslu og pólitík – public-private parnership, í reynd auka beint áhrifavald auðhringanna. Hann taldi að vestræn þjóðfélög þjáðust af „lýðræðisöfgum“ (excesses of democracy) í stjórnsýslunni (lýðræðisöfgar voru meginatriði í ársskýrslu hugveitunnar árið 1975) og sömuleiðis að þau þjáðust af of þungu velferðarkerfi. Bandarískir ráðherrar hafa ekki verið sóttir meira í neina hugveitu en í The Trilateral Commission. Æðstu menn fjármálalífsins er líka þar að finna. Ef nýfrjálshyggjubyltingin á sér einn upphafspunkt er hann einmitt í The Trilateral Commission.
Eitt einkenni á Trilateral Commission er mikil tengsl við CIA. Sjá hér. Önnur megináhersla Trilateral hefur frá byrjun verið að rækta „þver-atlantíska öxulinn“ (trans-atlantic axis) enda félagssvæðið bæði Ameríka og Evrópa sem áður segir.
Trilateral Commission á sér systkyni á svipuðum aldri í Aljóðaefnahagsráðinu (WEF) í Davos sem stofnað var 1971. Munur þeirra er sá að meðlimir þess ráðs eru einkum stórfyrirtæki en ekki einstaklingar eins og er hjá Trilateral. Áhrifavald WEF er nú beinna og meira en Trilateral. Epstein var i nánum tölvupóstskiptum við hinn norska Børge Brende forseta WEF (fyrrum forsætisráðherra). Þeir ræddu þar „new global architecture" í t-pósti árið 2018 og Epstein skrifaði að hann teldi að «Davos can really replace the UN“ (Davos getur virkilega komið í stað Sameinuðu þjóðanna). Þessu svaraði Børge Brende strax: „Exactly - we need a new global architecture. World Economic Forum (Davos) is uniquely positioned - public private. Best, Borge.”
Ég ætla í framhaldinu að halda mig við ákveðna úttekt á skjölunum, þ.e.a.s. samtal tveggja blaðamanna hjá rannsóknarmiðlinum The Grayzone, þeirra Kit Klarenberg í Englandi og Max Blumenthal í Washington. Það eru skarpir greinendur í allra fremstu röð. Ég mæli sterklega með að horfa á viðtalið í heild.
Bresku tengslin
Epstein starfaði á þver-atlantíska öxlinum, í anda Trilateral Commission. Einn náinn vinur hans var einn valdamesti stjórnmálamaður Bretlands, Peter Mandelson, margfaldur ráðherra Verkamannaflokksins, m.a. utanríkisráðherra. Og hann var líka meðlimur í The Trilateral Commission, líkt og nánir félagar hans, Tony Blair og Keir Starmer. Um hann segir Max Blumenthal (klippa 2:38 mín):
„Peter Mandelson lávarður var á margan hátt arkitekt Nýja Verkamannaflokksins, í því nýfrjálshyggjuverkefni að taka yfir Verkamannaflokkinn, færa hann til hægri og tortíma Jeremy Corbyn. Nú virðist sem ríkisstjórn Keir Starmers sé á barmi hruns vegna þessara nýju uppljóstrana. Ég hef ekki fylgst eins náið með Bretlandi og ég ætti að gera, en breskir fjölmiðlar einbeita sér nú að þessu 100%.“
Mandelson skipulagði fund Epsteins með Tony Blair í Downingstræti, hann kjaftaði í tölvupóstum leyndarmálum breskra stjórnmála í Epstein, sagðist m.a. hafa ýtt Gordon Brown til afsagnar árið 2010. Hann hafði sem nánasta aðstoðarmann McSweeney sem verið hefur verið lykilmaður í ritskoðun, gegnum sk. „Stop Funding Fake News” og vann mjög að þvi að óhelga Jeremy Corbyn og eyðileggja feril hans vegna „gyðingaandúðar“.
Evrópa og Miðausturlönd
Auk Bretlands lagði Epstein heilmikla rækt við Evrópu. Hann var m.a. mjög náinn Thorbjørn Jagland, fyrrum forsætisráðherra Noregs, sem var í 10 ár forseti Evrópuráðsins.
Frá 10. áratug og áfram var Epstein mjög áhugasamur um viðskiptatækifæri í Rússlandi, í formi mansals stúlkna með meiru. Smám saman urðu þó viðskiptamöguleikarnir meiri og gjöfulli í Úkraínu en í Rússlandi, sérstaklega eftir valdaránið þar 2014. Eftir að Úkraínustríðið hófst hafa Bandaríkin svo tryggt sér fullan aðgang að auðlindum Úkraínu. Við höfum áður birt hér á Neistum grein um Úkraínutengingu Epsteins og vina hans, mansalshringi með börn og barnungar konur, einnig líffærasölu, líftæknitilraunastofur fyrir „hönnunarbörn“ og fleira athyglisvert.
Nokkrum vikum eftir valdaránið í Kiev svarar Epstein Ariane de Rothschild bankastjóra í tölvupósti og segir: „Umbyltingin í Úkraínu á að gefa okkur mikla möguleika.“ Blumenthal og Klarenberg ræða hér um þessi tölvupóstskipti milli þeirra (klippa 14:40 mín):
Max Blumenthal: „Þú minntist á þennan tölvupóst frá Ariane de Rothschild til Jeffrey Epstein. Og Epstein svarar, þetta er eftir Maidan-valdaránið. Umrótið í Úkraínu átti að skapa ríkuleg tækifæri, ríkuleg. Jæja, Biden-fjölskyldan skildi svo sannarlega þau skilaboð. Hunter Biden hélt raunar úti eins konar samhliða Epstein-neti gegnum Úkraínu. Það er raunar það sem ég tel að gildi þessara tölvupósta sé, það sýnir þér hvernig viðskiptin ganga fyrir sig – til dæmis í fátæku, auðlindaríku landi, ríku af gasi, sem var nýkomið undir raunverulega stjórn NATO og ESB, í Úkraínu. Þannig er þetta gert í gegnum þessi valdanet.“
Kit Klarenberg: Já, það er alveg ljóst að þetta var kjarnaáhugaefni Epsteins, þú veist, hvaða atburðir eru að eiga sér stað um allan heim? Hvernig get ég hagnast á þeim? Hvernig geta vinir mínir hagnast á þeim? Og ég gæti bætt því við að það eru nokkur samskipti við Peter Thiel þar sem Epstein ræðir hvernig óreiðan [chaos] er markviss stefna Bandaríkjanna og að það skapi tækifæri fyrir okkur, af því ef helmingur heimsins stendur í ljósum logum getum við, á einn eða annan hátt, í anda hamfarakapítalisma, grætt á tá og fingri, hvort sem það er beint eða óbeint.
Þrátt fyrir Úkraínutengslin og annað slikt er að sjá að hin evrópsku tengsl Epsteins hafi meira þjónað öðru sviði sem hafði meiri forgang í huga Epsteins en Evrópa, þ.e.a.s. Miðausturlönd. Í því sambandi ræktaði hann þó samband við annan norskan pólitíkus Terje Rød Larsen sem heimsótti hann 20 sinnum til Manhattan – af því Terje Rød Larsen var sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Miðausturlöndum. Ásamt eiginkonu sinni Monu Juul skipulagði Rød Larsen Oslóar-samkomulagið árin 1993/95 og um það er grein á Neistum eftir Katjönu Edwardsen. Tengslanet Jeffrey Epsteins var mjög virkjað í tenslum við Oslóar-samkomulagið. Enda var þáverandi forseti Bandaríkjanna, Bill Clinton sem leiddi saman Yitzhak Rabin og Yasser Arafat, líka vinur Epsteins.
Á öðrum áratug þessarar aldar fóru Bandaríkin að vinna að „normalíseringu“ milli Ísraels og nokkurra Arabaríkja, á kostnað Palestínu. Epstein var þar virkur tengslamiðlari og ræktaði sambönd m.a. við voldugan kaupsýslumann Ahmed bin Sulayem í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, eiganda stórra vöruhafna í arabaríkjum (hann átti m.a. af honum hneykslanlegar myndir). Þetta var mikilvægt í upptakti að sk. Abraham-samningum sem Bandaríkin miðluðu um árið 2020 milli Ísraels og nokkurra Arabaríkja. Sameinuðu furstadæmin urðu þar fyrst. Verðmæti Epsteins í samhenginu lágu ekki síður í toppsamböndum hans í Ísrael.
Það er ljóst að Epstein hafði traust sambönd við leyniþjónustur, og meira en eina. Nefna ber William Burns, núverandi yfirforstjóra CIA sem Epstein átti nokkra fundi með. Hann var líka í talsverðum tengslum við fólk tengt MI5 og MI6 í Bretlandi. Og ekki síst var hann í miklu sambandi við fólk í ísraelsku Mossad.
Það hverjir helstu fjármálbakhjarlar Epsteins voru (Leslie Wexler, Rothschilds..) og ekki síður tengslanet hans, m.a. í diplómatíinu, bendir hið mikla vægi ísraelskra hagsmuna. Tengsl hans við Ehud Barak sýna það hvað best. Þau eru afar þétt og náin, meðan Barak var forseti Ísraels, varnarmálaráðherra og yfirmaður ísraelskrar leyniþjónustu. Skjölin sýna fram á a.m.k. 36 samfundi þeirra og yfir 100.000 tölvupósta.
Agent Rússa – agent Ísraels?
Allt frá því Epstein-skjalasafnið var opnað 3. febr. sl. hafa ýmsir meginstraumsmiðlar talað nokkuð um þann möguleika að Epstein hafi verið agent – en þá fyrst og fremst að hann hafi verið rússneskur agent. Kit Klarenberg segir það alveg gegnumgangandi í breskri blaðaumræðu um málið „að hún nefnir ekkert um hin ísraelsku tengsl hans [Epsteins], það er alveg ónefnanlegt í fjölmiðlum“. Daginn sem skjölin voru opnuð lýsti pólski forsætisráðherrann Donald Tusk því yfir að pólsk yfirvöld myndu hefja rannsón á því sem hann sagði að væru mögulegt samband milli Epsteins og rússneskrar leyniþjónustu. Með því gaf hann tóninn fyrir áframhaldandi „afhjúpanir“ meginstraumsins. Um þetta segja þeir Grayzone-bræður (klippa 1:18:30):
Max Blumenthal: „Það er ljóslega eitt helsta markmiðið hér að kenna Rússum um – en það er jafnframt augljóst markmið að beina athyglinni frá hinu augljósa, sem er að hann [Epstein] hefur umkringt sig fólki sem hliðhollt er Ísrael og Ísraelum. Hann tók á móti núverandi forseta Ísraels, Isaac Herzog, á Epstein-eyju árið 2014. Ehud Barak var einn af hans nánustu samverkamönnum, eins og þú sagðir, Kit. Þeir unnu saman að því að stofna eftirlitsfyrirtæki eins og Palantir ... farðu í Gmail-póstinn hans og leitaðu að hvaða nafni sem er, og þú finnur þar endalaust af fólki sem er hliðhollt Ísrael: Peter Thiel [Palantir], Reid Hoffman [LinkedIn], Arthur Ochs Sulzberger, yfirmann útgefanda New York Times, Peter Mandelson, Ehud Barak...“
Kit Klarenberg: „Ég gæti líka bætt við hvernig Barak rekur þetta fyrirtæki sem heitir Toka, sem getur breytt myndefni úr eftirlitsmyndavélum. Þetta er í raun vaxandi heimilisiðnaður í Ísrael um þessar mundir. Það er mikil áhersla lögð á gervigreindarknúna myndbandsgerð og klippitækni ... Þú veist, netdeild hernámsliðsins, maður hlýtur að spyrja sig af hverju hafa þeir svona mikinn áhuga á að ritstýra/fótósjoppa myndefni í rauntíma? ... Og hvort þetta leysi vandamálið að þurfa raunverulegt fólk til að hafa yfirumsjón með slíkum aðgerðum þannig að skotmörk/fórnarlömb láti glepjast svo hægt sé að búa til falsað kúgunarefni.“
Hægt að kúga Trump út í stríð við Íran?
Þá kemur ein spurning um Trump og Íran. Svo er að sjá að hann langi ekki til að fara í stórstríð við Íran eins og sakir standa. Það vill hins vegar Ísrael að hann geri.
En Pramila Jayapal þingmaður frá Washington-fylki lenti í deilum við Kash Patel, forstjóra FBI, í september 2025 vegna þess að skjölum var haldið eftir í rannsókninni á Jeffrey Epstein. Hún sakaði hann um að hafa sviðsett „risastóra yfirhylmingu“ á Epstein-skjölunum og hélt því fram að Patel og Bondi dómsmálaráðherra hefðu ákveðið að birta ekki frekari gögn eftir að hafa komist að því að „nafn Donalds Trump væri út um öll þessi skjöl“.
Það er næsta víst að Netanyuahu hefur allar sömu myndir, m.a. ótal myndir frá Epstein Island, og þar með býsna fullkomið kúgunartól á Donald Trump. Það er m.ö.o. heilmikill kraftur fólgnn í Epstein-skjölunum, jafnvel kraftur til að koma af stað stórstyrjöldum.
Greinin birtist einnig á vefritinu neistar.is: https://neistar.is/greinar/gluggi-ad-innri-hnignun-vestursins/