Fara í efni

VINSTRI GRÆN Í GARÐABÆ

Allstaðar má byggja brú,
það boðar Rauða kverið,
og Vinstri grænir geta nú
í Garðabænum verið.

Hér var útlit hélugrátt,
en hagur fer að vænka
því þar sem áður böl var blátt
nú byrjað er að grænka.

Nú bregður lífsins lukkuhjól
á leik með Vinstri grænum,
við höfum eignast húsaskjól
hér í Garðabænum.

 Kristján Hreinsson
Á stofnfundi VG félagsins í Garðabæ,
 fimmtudaginn 12. mars 2009,