Fara í efni

VERJUM SJÁLFSTÆÐI OKKAR OG AUÐLINDIR!

Þörf á yfirburðarfólki Ögmundur, þú hélst góða ræðu í Icesave-umræðunni en það voru ansi margir sem lásu á milli línanna að þó þú verðir mótfallin þessari ríkisábyrgð, þá munir þú samþykkja hana að lokum með þeirri afsökun að bjarga lífi ríkisstjórnarinnar, t.d. með þeim rökum að verst af öllu vondu sé að Sjálfstæðisflokkurinn komist aftur til valda. http://eyjan.is/blog/2009/07/02/ogmundur-vill-stjornarandstadan-bara-fella-rikisstjornina-en-semja-svo-a-somu-notum-um-icesave/  Það er vissulega ógeðfellt af Samfylkingarmönnum að stilla heiðarlegum þingmönnum upp við vegg með því að gefa í skyn að stjórnin springi með falli frumvarpsins. En þegar sjálfstæði og auðlindir Íslands eru í húfi þurfum við sérstaklega á að halda yfirburðarfólki sem er ekki í fastataumi hjarðhugsunar heldur stendur og fellur með eigin sannfæringu.
Ríkisstjórnir koma og fara, en við þurfum umfram allt að verja sjálfstæði okkar og auðlindir gegn voldugum elítum heimskapítalismans. Það á að knésetja Ísland með þessum samningum og við þurfum að verja okkur. Ég skil áhyggjur þínar af hugsanlegri endurkomu hrunstjórnarinnar (S+D) þar sem Sjálfstæðismenn muni einfaldlega taka upp samningaþráðinn og landa lítið skárri samningi og standa með honum. Það væri því ráð að fá Sjálfstæðismenn til þess að lýsa því yfir að þeir muni styðja minnihlutastjórn VG (hugsanlega ásamt Borgarahreyfingu og/eða Framsókn) komi til stjórnarslita í kjölfar felldrar ríkisábyrgðar. Væntanlega eru stjórnarandstæðingar tilbúnir til þess í ljósi þeirrar áherslu sem þeir leggja á að frumvarpið verði fellt. Ég vona svo sannarlega að þú takir þá skynsömu ákvörðun að fella frumvarpið, enda er það mun betri kostur að fella frumvarpið og vona og að hrunstjórnin komist ekki aftur til valda fremur en að sitja áfram með með samþykktan samning og vona að þjóðin nái að borga allar skuldir sínar, halda auðlindum sínum og sjálfstæði og komist hjá því að vera innlimað í ESB.
Það ætti varla að vera erfitt fyrir VG-liða að semja við stjórnarandstöðuna um ásættanlegt stjórnarmynstur ef Samfylkingin gefst upp. Allt er hægt þegar mikið er í húfi. Eigi skalt þú óttast endurkomu hrunstjórninarinnar Ögmundur. Hún mun hvort eð er eingöngu gera byltinguna óumflýjanlega. Ekki þykir boðlegt fyrir böðul að réttlæta starf sitt með þeim rökum að ef hann tæki ekki starfið að sér, þá myndi einhver annar gera það, og þá hugsanlega með enn verri hætti. Svo er með alla stjórnarherra, að ef þeir eru beðnir um að gerast böðlar stórvelda yfir eigin þjóð, þá er hið eina rétta að standa og falla með eigin sannfæringu og berjast til þrautar fremur en að þiggja starfið til þess að valda minni þjáningum en annar böðull myndi valda. Stór hluti þjóðarinnar bindur vonir sínar við heilsteypta stjórnarliða sem finna til þeirrar ábyrgðar sem felast í því að verja sjálfstæði og auðlindir hennar. Til þess ert þú á Alþingi Ögmundur og í ríkisstjórn. Við treystum á þig. Það er auðvelt að taka réttar ákvarðanir, en það eru þær ákvarðanir sem gerir þér fært að standa áfram uppréttur og horfast í augu við fólk, vitandi að þú gerðir hið rétta. Þú ert þannig maður Ögmundur og vonandi verður þú ætíð þannig.
Með baráttukveðjum,
Þórarinn Einarsson