Fara í efni

UMBUNIN og FÁLKAORÐAN

Aumingja Orðuna auðvitað fá
aldnir stóðu í röðum
Hetjur landsins og höfðingja sá
hyllta á Bessastöðum.

,,JÁ EF‘‘

Ef milljarðana marga ætti
vegferð mína alla bætti
Sennilega á sjónum hætti
sit því fyrir lottódrætti.

Framtíðin ei fögur er

Nú byrja leiðindi landinu á
lýðurinn má kjósa
Fasistar bjarta framtíð sjá
og fylginu hrósa.

JANÚAR 2026

Heimurinn versnar ár eftir ár
af einræðistilburðum manna
Með vopnum tala vekja upp sár
viðbjóðinn árin öll sanna.

Höf.
Pétur Hraunfjörð.