Fara í efni

TRUMP

Já ljótur er og líður illa
leiðir oss á ystu nöf
Hann vill hér öllu spilla
og grafa öðrum gröf.

FRÆGÐIN

Frægðarbraut menn fara á
og finna hamingjuna
En ljóðurinn er þó alltaf sá
eiga við samviskuna.

DRAUMA LAUSNIN

Evrópu klíkan er nýjasta nýtt
nú leysa þær vandann
Allt verður þá blessað og blítt
bænheirðar að handan.

ALHEIMSKEISARINN Á ÞETTA MÁ ÞETTA?

Trump drap klerkinn Khamenei
og ekkert virðist fela
Að sjálfsögðu öll við segjum nei
síðast var Venesúela.!!

BAKKAKOT

Um barsmíðar og barna níð
af Bakkakoti heyrum
þar var Fólska þar var stríð
þessu aldrei gleymum.!!!

Höf.
Pétur Hraunfjörð.