Fara í efni

TIL UPPRIFJUNAR

Var fyrst núna að hlýða á viðtalið á Kjarnanum í kjölfar fundarins við V. Beeley. Verð að segja að ég dáist að þolinmæði þinni, æðruleysi og staðfestu gagnvart þessum blessuðum, að mér finnst ófaglegum frétta-gösprurum. Ég sá að Z.Brzezinski lést í maí síðastliðnum, vissi það ekki. Set þessa þýðingu á viðtali við hann á Le Nouvel Observateur 1998 þar sem hann viðurkennir að stuðningurinn við Mujahiddin hófst 1/2 ári fyrir innrás Sovétríkjanna inn í Afganistan. Við hæfi að rifja þetta upp nú: http://dgibbs.faculty.arizona.edu/brzezinski_interview
Ari Tryggvason