Fara í efni

LOKSINS!!?

Á maður að trúa því að nú hilli undir að Guðmundar- og Geirfinnsmálin verði tekin upp að nýju? Ég trúi því ekki fyrr en ákvörðun liggur fyrir. Hitt veit ég að þetta mál hefur hvílt á þjóðinni í 40 ár því innst inni telja flestir að rangir dómar hafi verið felldir. Óskandi væri að þessi ljóti blettur verði hreinsaður úr sögubókum íslenskrar réttarfarssögu.
Sigrún Jónsdóttir