Fara í efni

KOSNINGAR TELJA SNÚIÐ

Af göflunum er gengið lið
gjörsamlega trausti rúið
Faglegar breytingar fáum við
en kosningar telja snúið.

Katrín á koppnum malaði
kjaftæðið hlustuðum á
Um ekkert eiginlega talaði
´ún mætti nú fara frá !

Þau létu þar að því liggja
og lyftu sér öll á tá
Að velferð yrðu að tryggja
Alþýðunni hjá

Í ræðum sínum þar raupuðu
af röksemd einurð og pent
Að frá völdum hér ei hopuðu
fyrr en harðræðið sé lent !

Eins og sagan segir mér
sjálfsagt í nú vitna
Ef að eitthvað út af ber
ástir vina slitna.

Hrósa upp lélegt hjónaband
hægrimenn nú reyna
Stjórnin æðir beint í strand
staðreyndinni leyna.

Höf. Pétur Hraunfjörð.