Fara í efni

,,Í BOTNSÆTINU‘‘

Gáfna ljósin lýsa veginn
leiðina niður á við
Ákaflega við yrðum fegin
ef sæjum betra lið.

,,FRAMTÍÐIN‘‘

Hér líður að leiðinda tíma
landinn fellir tár
í verðbólgu vexti má híma
ótalin næstu ár.

,,HEIISULEYSIÐ ‘‘

þar háði léleg heilsuhreisti
hreinlega ótækt
Seðlabanki þá sjálfur reisti
sína heilsurækt.

,,VERÐBÓLUVEXTIRNIR‘‘

Hér lifum við vonda tíma
verðbólgu & hávaxta ár
Endalaus er þessi glíma
og allir með magasár.

,,BOTNINN‘‘

Þá er nú botninum náð
nú breytist hagur
þrautum og þyrnum stráð
al þekktur slagur.

,,ÚTGERÐAMENN‘‘

Landið eignast smátt og smátt
búnir að smakka áði
Hér kaupa upp allt hátt og lágt
eru varla langt frá því.

,,Ungdómurinn‘‘ í dag

Allt í dópi og drykjuskap
deyfa vit og rænu
Hugsa litið um heilsutap
né hamingjuna vænu.

Höf.
Pétur Hraunfjörð.