Fara í efni

HVERS KONAR JAFNAÐAR-MENNSKA?

Ég fylgdist með umræðunni um einkaþotuleigu ríkisstjórnarinnar á Alþingi og kom það mér óneitanlega á óvart af hve mikilli heift forsætisráðherrann varði ráðslag ríkisstjórnarinnar. En látum það vera með Íhaldið. Það er samt við sig í spillingunni. En hvað með þennan guðsvolaða flokk sem kallar sig Jafnaðarmannaflokk Íslands? Finnst mannskapnum þar allt í góðu lagi að láta almenning blæða fyrir tildur og flottræfilshátt sem þú réttilega kallar svo?  Hvers jafnaðarmennsku ætti að flokka þetta?
Jóel A.