Fara í efni

HVAR ER HUGREKKIÐ?

Daginn.
Það er auðvelt að vera digurbarkalegur í netheimum, en þú og samflokksmenn þínir hafa sanna að þar endar hugrekkið, sbr. atkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB. Hvernig væri nú sýna að ég hafi ekki rétt fyrir mér!
Árni Einarsson

þakka bréfið sem ég fékk fyrir nokkru. Ekki seinna vænna að birta það því endanleg atkvæðagreiðsla er í dag um Icesave. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðustu vikur. Enn er ég ósáttur við Icesave samninginn en fyrirvararnir sem Alþingi hefur sameinast um að smíða eru til mikilla bóta og gerbreyta málinu að mínu mati.
Kv.
Ögmundur