Fara í efni

HA?

Var að lesa bréfið frá Hreini Kárasyni og er vægast sagt gáttuð. Ríkisstjórnin  virðist ramba inn á allar brautir sem liggja til Dýrabæjar Orwells. Skyldi þetta vera ásetningur eða eðlisávísun? Ha? Svo er líka góð ábending hjá Sverri Jakobssyni í Fréttablaðinu í dag um einkaþotuferðmáta þeirra Geirs og Ingibjargar Sólrúnar. Sjö milljónir í þotu til að spara tíma. Kannski hefði verið betra að millilenda, bíða og lesa gögnin fyrir fundinn, því þau virðast ekki vita hvað þau voru að samþykkja í Búkarest! Það kom fram í Kastljósinu þegar utanríkisráherra virtist ekki gera sér grein fyrir því að hún hafði stutt að nýtt eldflaugakerfi bandarískra vopnaframleiðenda yrði sett upp í NATÓ ríkjunum.
Sunna Sara