Fara í efni

GEIR Á HÁU PLANI

Geir H. Harde, forsætisráðherra, bregst önugur við gagnrýni um að hann og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, skuli nota skattpeninga okkar til að leigja undir sig einkaþotu á NATÓ fund í Rúmeníu. Segir Geir þessa umræðu á "lágu plani". Lágkúra okkar sem gagnýnum þau sé "með ólíkindum" . Þetta sagði Geir okkur á forsíðu Fréttablaðsins í dag. 
Svona lítum við semsagt út, íslenskur almeninngur, séð úr háloftunum, úr þrjátíu þúsund fetum í einkaþotu - þaðan séð erum við náttúrlega á mjög "lágu plani". Þau Geir og Ingibjörg þá væntanlega á háu plani. Spurning hve lengi við nennum að borga undir þennan mannskap sem talar af slíkum hroka til þjóðar sinnar.
Kv.
Haffi