Fara í efni

SAMMÁLA UM HINA "GÓÐU BANDAMENN"

Sæll vert þú Ögmundur styð þessa skoðun þína 100% því þetta er bara svo víðáttu vitlaust, fyrir það fyrsta þá er þetta stríð löngu tapað fyrir Ukraníumönnum og aðeins gert til að framlengja hörmungar þessarar þjóðar og annað hitt að Bandaríkjamenn geta ekki afhent þessi vopn sökum þess að þeir eiga þau ekki til og það litla sem til er fer væntanlega til Miðjarðarhafs svæðisins. Hef reynt að fylgjast vel með þessum átökum og reynt að nota gleraugu skynseminar á þau og sjá í gegnum þennan "skrípaleik allan" Fólk hér og stjórnvóld hér á landi sjá þetta allavega ekki sömu augum og ég geri, hef alltaf fylgt Rússum að máli í þessum átökum frá fyrsta degi því ég tel mig geta séð í gegnum þetta allt og allt það slæma að mínu mati er komið að undirlagi bandarískra og ísraelskra stjórnvalda. Fyrigefðu mér bara hreinskilni mína.

Með kærri kveðju og vinsemd

Grétar Eiriksson Suðureyri við Sugandafjörð.

Sæll Grétar. Þú þarft ekki að afsaka hreinskilni þína. Hún er bara til góðs. Þar að auki sjáum við margt með sömu gleraugum. Úkraínustríðið er hryllingur og glæpsamlegt að halda því áfram - til sigurs! Ég er líka sammála því að BNA, NATÓ, og ég vil bæt við ESB, eiga drjúga sök á því hvernig komið er. Þess vegna er það nánast einnig glæpsamlegt að þagga niður í þeim sem leyfa sér að sjá málin í öðru ljósi en BNA- og NATÓ býður. Tvískinnungur er allsráðandi. Þá er það rétt að vopnin streyma til Ísrales svo halda megi áfram þjóðarmorðinu á Gaza. Og þar styðja NATÓ ríkin beint og óbeint, Þannig hafa Evrópuríki sent vopn til Íslraels og aldrei lyft litlafingri til að stöðva stríðið. Hins vegar hefur margt verið sagt til málamynda - til að þykjast. 
Með kveðju,
Ögmundur