Fara í efni

EGGERT SAMMÁLA MÉR, ÉG SAMMÁLA HONUM!

Sæll Ögmundur,
Vil fá að þakka þér fyrir hugleiðingar þínar sem þú settir fram í Morgunblaðinu í dag. Mikið er ég innilega sammála þér.
Ef okkur er svo annt um kolefnissporið og mengun jarðar þá er mun viturlegra fyrir okkur að senda þessa peninga til Indlands eða Kína sem við ætlum að kosta í þetta verkefni á Íslandi.
Ástæða þess er jú sú, eins og hver heilvita maður sér ef hann hugsar rökrétt, að jaðar áhrifin af næstu krónu, milljón, milljörðum, nýtast mun betur þar sem virkileg mengun er eins og á Indlandi eða Kína heldur í okkar hreina og fallega landi.
Það er alveg galið að ætla að fara að setja allt þetta fjármagn í þessa hluti hér á Íslandi “til að vera með” þegar þessir hlutir eru í góðum málum hér á landi og hafa alltaf verið vegna þeirra vistvænu orkugjafa sem við höfum notað í tugi ára auk fámennis og víðernis.
Það væri nær að nota þetta fjármagn í að hlúa að sjúkum og fátækum eða bæta menntakerfið.
Kveðja,
Eggert