Fara í efni

KASTLJÓS MARÍU SIGRÚNAR UM LÓÐAHNEYKSLIÐ - FJÖÐUR Í HATT FRÉTTASTOFU

Fréttaskýring Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur um olíulóðahneykslið var henni og fréttastofu Sjónvarps til mikils sóma.
Ég tek hatt minn ofan fyrir Kastljósi fréttastofu Sjónvarpsins fyrir að færa okkur þennan upplýsandi og vel unna átt. En set hattinn hins vegar aftur upp þegar mér verður hugsað til fréttaskýringarþáttarins Kveiks og þeirra sem stjórna honum. Hvers vegna í ósköpunum var þessum fréttaskýringarþætti ekki tekið fagnandi? Og enn þarf að spyrja hvernig á því standi að ristjórn Kveiks hafi ekki fyrir löngu síðan tekið þetta furðulega hneykslismál til umfjöllunar.
Er til of mikils ætlast að ritstjórn Kveiks svari þessu opinberlega?

Í stað þess að fá stuðning og hrós frá ritstjórn Kveiks fékk fréttakonan að heyra að rannsóknarfréttamennska væri ekki hennar sterka hlið – hún ætti að halda sig við að lesa fréttir annarra því það gerði hún vel. Mikið rétt, það gerir hún vel, en ekki síður vel stendur hún sig sem afbragðsgóður fréttamaður, vandvirk og órög. Það hefur nú áþreifanlega sannast – eina ferðina enn.

Ég hef fylgst eins vel með þessu máli eins og kostur hefur verið en upplýsingar hafa hingað til verið af skornum skammti. Þakkarvert hefði verið að fá þennan þátt þegar þetta makalausa mál var í bígerð, áður en olíufélögunum voru færðar lóðirnar til ráðstöfunar. Leynilegu samningarnir «einkaréttarlegs eðlis», sem við heyrðum af í Kastljósþættinum, minna óneitanlega á Icesave leyndina á sínum tíma. Upphaflega var reynt að koma í veg fyrir birtingu fyrsta Icesave samningsins sem þinginu var hins vegar ætlað að samþykkja nánast óséðan. Síðan móðguðust menn ógurlega þegar á þetta var minnt.

En nú þarf að verða framhald á. Borgin þarf að upplýsa nánar hvað gerðist, sjá hverju er hægt að hnika til baka. Menn eiga ekkert að gefa sér um það. Ég skildi það svo að hvergi stæði í samningum við olíufélögin að þau hefðu eignast byggingaréttinn. Það væri hins vegar gengið út frá því! En ef það ekki stóð skýrum stöfum þá er varla hægt að ganga út frá því að ígildi eignarréttar væri þeirra. Eða hvað?

Hvað sem úr verður þá þarf að fara í saumana á þessu máli öllu. Það gengur ekki fyrir Reykjavíkurborg að segjast vera að leysa loftslagsvandann í heiminum þegar hún setur eignir borgarbúa í hendur braskara því þannig gangi málin hraðast fyrir sig! Ég held að það hljóti að vera svo að fleiri hafi sett hljóða þegar borgarstjóri hafði lokið máli sínu á þessum nótum. Þetta var inntakið þegar á hann var gengið.

Augljóst er að þessu máli er hvergi lokið, hvorki af hálfu borgarinnar né varla af hálfu ritstjórnar Kveiks sem nú hlýtur að viðurkenna mistök sín með því að bjóða Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur velkomna í hópinn að nýju. Annað gengur ekki. Þetta er ekki prívatmál nokkurra manna.

Hér er umfjöllun Maríu Sigrúnar í Kastljósi: https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024-05-06-umdeildir-samningar-um-bensinstodvalodir-412005

---------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.