Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Janúar 2009

VG HALDI SÍNU STRIKI!

Menn tala nú mikið um þá yfirlýsingu Steingríms J. að vilja athuga að skila láni AGS. Það verður að athuga það að fólk hefur ekki góðar upplýsingar um stöðu mála og trúir því (margoft hefur það og verið tuggið) að lán frá sjóðnum sé það eina sem getur bjargað þessari þjóð, en ósköp er það nú dapurlegt að fátt virðist hafa lærst af undangengum hörmungum.

HVAÐ ER AÐ FINNA Í SKÚFFUNUM?

Ríkisstjórnin er voðalega góð þessa dagana að eigin sögn. Hvílík framkvæmdagleði í þágu heimilanna. Hefur sko fundið það upp að setja ekki barnabætur upp í opinber gjöld.

HVER ÓL ÞIG UPP?

Auðvitað veistu það Ögmundur, að maður sem hagar sér eins og þú á Alþingi, eins og þú gerðir í s.l. viku er ekki stjórntækur.

TRAUST HANDABAND

Þú veist hvaða álit ég hef á þér Ögmundur svo ég fjölyrði það ekki, en ég get sagt þér með fullri sannfæringu að Geir Jón Þórisson sem þú tekur í hönd á (http://www.ogmundur.is/annad/nr/4379/)er einnig einstakur sómamaður.  Þið reyndar passið vel saman, báðir einstaklega góðir drengir sem gera allt sem á ykkar valdi er, til að þjóna hagsmunum íslensku þjóðarinnar sem allra best!  . Auðvitað er það rétt að lögreglan er samherji fólksins en ekki mótherji þess.  Lögreglan er almúgafólk, skattgreiðendur og góðir Íslendingar eins og þú og ég sem veldur mjög erfiðu starfi vel og faglega sem er ekki minnst að þakka Geir Jóni og hins ágæta lögreglustjóra Stefáni Eiríkssyni.

KOMA ÞARF TIL MÓTS VIÐ FÓLKIÐ

Mig langar svo til að athuga hvort ekkert eigi að fara gera varðandi gjaldþrotalögin í landinu ? Ef svo, hvenær? Það virðist allt stefna í fjöldagjaldþrot og heimilin í landinu geta ekki beðið,ef það verður mikið atvinnuleysi þá rúlla bankarnir aftur yfir og það mun gerast mjög fljótt.

HVAÐ VERÐUR GERT FYRIR VERSLUNARFÓLK?

Sæll Ögmundur. Ég hef verið að velta fyrir mér undanfarna mánuði hvað stjórnmálaflokkarnir ætla að gera til að bæta og passa uppá kjör verslunarfólks og verkafólks.

MAFÍU-STJÓRNMÁL?

Er mafía á Íslandi? Ég þarf svosem ekki að setja spurningamerki á eftir setningunni. Jú lesandi góður, það er mafía á Íslandi.

BARA HUGSAÐ UM VÖLD?

Sæll félagi og vinur.  . Nú þegar hefur verið ákveðið að efna til kosninga skil ég ekki alveg hverju það breytir hvort kosið sé í byrjun apríl eða mai.  Ef við gefum okkur það að úrslit kosninganna verði eins og skoðannakannanir gefa til kynna er VG stærsti flokkurinn.  Eins og þú og Steingrímur hafa talað undanfarið vilið þið mynda stjórn með SF sem er annar þeirra flokka sem fólkið er að mótmæla í dag.  Mun sá flokkur breytast svo mikið við að fara í samstarf við VG að fólk sætti sig við hann í stjórn?  Ég hef ekki heyrt neinn úr SF gera athugasemdir við skilyrði IMF.  SF vil fara inn í ESB.  VG er á móti skilyrðum IMF og síðast þegar ég vissi vildi VG þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort ætti að fara í alildarviðræður við ESB.  Finnst VG það vænlegur kostur að fara í stjórnarsamstarf með fólki sem fer á taugum og gerir uppreisn í flokknum á meðan formaðurinn liggur á sjúkrahúsi í öðru landi?  Hefði þeim ekki verið nær að bíða meðan þennan fund þar til hún kæmi heim?  Á þjóðin að treysta þessu fólki?  Flokksfélagar hennar eru kanski búnir að afskrifa hana og ætla að setja hana af.  Einn ráðherra og nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar hafa lýst því yfir opinberlega að Davíð Oddson sitji ekki í þeirra umboði og vilja að hann verði settur af.

VAKNIÐ AF VALDABLUNDI!

Hvað mun gerast á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Stefna Sjálfstæðisflokksins er nr.1-2-3-4-5.... að halda völdum sama hvað það kostar.

AFHROÐ AUÐVALDSINS!

Sæll Ögmundur.... Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra hefur sýnt furðulega lítinn skilning á ástandi þjóðfélagi vors í dag, sem lýsir sér með hinum ótrúlegustu og annarlegustu yfirlýsingum.