Fara í efni

VAKIN ATHYGLI Á FUNDI OG KVIKMYND Á VÍSI.IS

Visir.is birtir grein mína, Guantanamó til umræðu, þar sem ég geri grein fyrir tvennu, hádegisfundi næstkomandi laugardag (kl. 12) í Safnahúsinu við Hverfisgötu, með Máritaníumanninum Mohamedou og síðan sannsögulegri kvikmynd um hlutskipti hans. Þessi margverðlaunaða bandaríska kvikmynd, sem ber einmitt heitið Máritaníumaðurinn, verður sýnd í Bíó Paradís klukkan 15 þennan sama laugardag. Mohamedou verður viðstaddur þá sýningu.

Mohamedou var í haldi Bandaríkjamnna í 15 ár, þar af 14 í hinum illræmdu Guantanamó fangabúðum en var að lokum sleppt án þess að nokkurn tímann væri sett fram ákæra á hendur honum enda var maðurinn saklaus.

Þessu geri ég grein fyrir í fyrrnefndri Vísisgrein sem nálgast má hér:

https://www.visir.is/g/20242539046d/guantanamo-til-umraedu

Guantanamó til umræðu

Fangabúðir Bandaríkjanna á Guantanamó voru mjög í fréttum eftir að þær voru settar á laggirnar árið 2002 til að hýsa grunaða hryðjuverkamenn og knýja þá til sagna, með góðu eða illu, um allt það sem varpað gæti ljósi á hryðjuverkastarfsemi sem beindist að Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra.

Framan af voru fréttirnar á þessa lund: Almenningur í Bandaríkjunum var í áfalli eftir að tvíburaturnarnir í New York og fleiri byggingar voru jafnaðar við jörðu hinn ellefta september árið 2001 og í stríðsvímu, sem bandarísk stjórnvöld kyntu óspart undir, var síðan ráðist á Afganistan og skömmu síðar á Írak, allt til að kveða niður hryðjuverkaöfl; þannig var því stillt upp.

Svo leið og beið. Grunsemdir vöknuðu um pyntingar og illa meðferð á föngum í Guantanamó þótt það væri ekki fyrr en löngu síðar að fréttaveitan Wikileaks birti upplýsingar um hvað raunverulega færi fram í fangabúðunum, hryllilegar pyntingar á mönnum sem ekkert illt hafði sannast á.

Nú var farið að tala um að loka þessum fangabúðum sem staðsettar eru á yfirráðasvæði Bandaríkjamanna á Kúbu og þannig utan lögsögu bandarískrar mannréttindalöggjafar. Obama Bandaríkjaforseti lofaði því að hann myndi loka þessum búðum en aldrei stóð hann við þau fyrirheit.

Og enn eru þær starfræktar. Það ætti að vera Íslendingum umhugsunarefni að bandalagsríki Íslands rekur enn illræmdar fangabúðir þar sem stundaðar eru pyntingar og að allt skuli það gerast án þess að íslensk stjórnvöld hafi uppi mótmæli. Talið er að um þrjátíu fangar séu enn í Guantanamó.

Þessar illræmdu fangabúðir hafa verið nokkuð í fréttum að undanförnu í tengslum við réttarhöld í London þar sem tekist er á um hvort framselja eigi Julian Assange, stofnanda og fyrrum aðalritstjóra Wikileaks, til Bandaríkjanna til að svara til saka fyrir að upplýsa um stríðsglæpi Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra. Rifjað er upp að á meðal þess sem Wikileaks upplýsti voru, sem áður er vikið að, mannréttindabrot í Guantanamó. Þess má geta að Julian Assange er ástralskur þegn en Bandaríkjamenn vilja að hann svari til saka gagnvart bandarískum lögum og þeir vilja fá hann framseldan þótt á milli Bandaríkjanna og Bretlands sé samningur um að ríkin framselji ekki einstaklinga sem pólitískar sakir eru bornar á.

Nú ber svo við að einn kunnasti fanginn frá Guantanamó, Mohamedou frá Máretaníu, er staddur á Íslandi og kemur fram á opnum fundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu klukkan 12 á laugardag. Þá er þess einnig að geta að Bíó Paradís hefur fengið kvikmyndina Márataníumaðurinn til sýningar en hún fjallar sannsögulega um líf þessa manns og hlutskipti hans í Guantanamó.
Myndin verður sýnd í kvikmyndahúsinu klukkan 15 á laugardag, sama dag og fundurinn fer fram í Safnahúsinu. Um myndina, sem er margverðlaunuð, má fræðast nánar á vef Bíó paradísar og þá eining hvernig nálgast megi aðgangsmiða: https://bioparadis.is/mynd/306_the-mauritanian

Þá má nefna að á hádegisfundinum í Safnahúsinu á laugardag verður auk Mohamedous, dr. Deepa Govindarajan Driver en hún hefur kynnt sér pólitíska og lagalega umgjörð þeirra upplýsinga sem Wikileaks færði fram í dagsljósið um Guantanamó.

Ég leyfi mér að hvetja fólk til að sækja þessa viðburði og verða fyrir vikið upplýstari um skúmaskot alþjóðlegra stjórnmála og jafnframt sýnt þeim samstöðu sem beittir hafa verið órétti af hálfu þeirra sem fara með völdin í heiminum.

Ég vek athygli á að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.