Fara í efni

VANTAR ALVÖRU SÓSÍALISTAFLOKK

Ibsen leikrit, nei, hér er ekkert þvilíkt á ferðinni, heldur skipulögð glæpastarfsemi, sem hefur alla tíð, frá lýðveldisstofnun, viðgengist og er enn. Hvergi er hreinsð til í opinberu klíkukerfi, samt vita allir, Ögmundur, að stöðuveitingar og annað í þessu klíkukerfi, hafa alla tíð, gengið sölum og kaupum, í gegnum pólitískt litróf manna. Hvað hafið þið gert til að laga til? Ekkert , akkúrat ekkert. Vinstri, hægri, sama sullið, menn sem telja sig vinstri sinnaða í dag, vilja ekki einu sinni kenna heiti flokka við sósíalisma, eins og að sósíalismi sé orðið að skammarorði. Nei, langt í frá!! Ástandið á Íslandi er löngu fyrir séð, í þeim heimsspekiritum, sem ég hef lesið um sósíalisma. Og ekki bara á Íslandi. Það sem vantar í dag á Íslandi er ekta sósialistaflokkur, sem tekur á málunum.
Friðjón Steinarsson