Miðvikudaginn 19. maí rifjar leiðarahöfundur Morgunblaðsins upp gamlan misskilning sinn en því miður virðist það gert af ásetningi. Yfirskriftin erVilluljós í Verkamannaflokknumog fjallar um nýframkomna en oft endurtekna gagnrýni Blairs, fyrrum forsætisráðherra Breta og formanns Verkamannaflokksins, á vinstri arm flokksins og þá sérstaklega á Corbyn, um skeið leiðtoga hans: “Þingkosningarnar í desember 2019 sýndu glöggt hvað breskum almenningi þótti um Corbyn, en þá beið Verkamannaflokkurinn sitt stærsta afhroð frá árinu 1935.” Hér er vísað til ...
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 22/23.05.21. Úr ólíkum áttumer yfirskrift þessara helgarpistla. Reyndar geng ég sennilega heldur lengra en að koma úr ólíkri átt að þessu sinni því hún er þveröfug við frásagnir flestra fjölmiðla af þeim Mike og Tony, tveimur Íslandsvinum, sem okkur hafa verið kynntir sem slíkir á undanförnum árum. Sá fyrri er Michael Richard Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í forsetatíð Trumps, sá síðari Anthony Blinken ...
Minningargreinarnar um hana Gerði í Morgunblaðinu í dag eru hlýjar og fullar af söknuði. Þær lýsa afbragðsvel konunni sem við starfsmenn Sjónvarpsins bárum svo góðan og hlýjan hug til. Ég hef trú á því að það hafi allir gert. Um nokkurra áratuga skeið - nánast alla starfsævi Gerðar - var hún eins konar móttökustjóri Sjónvarpsins. Ekki svo að skilja að hún hafi heilsað öllum gestum með handabandi og boðið velkomna. Nei, hún var á símanum, í móttökunni þar sem gesti bar fyrst að garði og beindi jafnframt símatrafíkkinni inn á ...
Ég held ég verði að taka smá tilhlaup áður en ég segi hug minn til bókar Juans Villalobos(ar) sem Angustúra gefur út. Bókin heitirEf við værum á venjulegum stað,sem náttúrlega er ekki neinn venjulegur bókartitill.En aftur að tilhlaupinu. Það hefst í samtali um veggjakrot sem ég átti fyrir nokkrum árum við argentínska baráttukonu fyrir mannréttindum. Ég sagði að fátt réði ég eins illa við og að halda yfirvegaðri ró frammi fyrir veggjakroti. Hvort sem væri á ...
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 08/09.05.21. Þetta kom upp í hugann þegar ferðamálaráðherrann sagði í fréttum fyrir fáeinum dögum að ríkisstjórnin væri að íhuga að bjóða okkur öllum í mat að nýju. Endurtaka mataborðið frá í vor, svo vel heppnað hafi það verið. Ávísun sem við öll fengum þá til að hafa upp í matarreikning á veitingastað eða gistingu á hóteli hefði gert tvennt í senn ...
Fréttir af því að nú eigi að gera ekki bara kostnaðaráætlun heldur einnig verkáætlun um að hreinsa og flytja á brott spilliefni sem legið hafa í jörðu í Heiðarfjalli á Langanesi frá þeim tíma sem Bandaríkjaher sat þar í hreiðri þar til fyrir hálfri öld. Á málið hefur verið þrýst á undanförnum árum og með vaxandi þunga þar til nú að hyllir undir lyktir þessa máls. Það er mikið gleðiefni og ...
Leiðtogahjörðin á liðinni stund lyftist á tá hver einasta Hrund þær sér útvöldu sitt ágæti töldu og heimsyfirráð vildu eftir fund. Höf. Pétur Hraunfjörð.
Skýrsluna hefði mátt skrifa betur til nánari skoðunar landinn hvetur þeir vinahóp töldu og ættmenni völdu í eftir á meðferð sjáum hvað setur. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.
... Nú hafnar eldflaug í Póllandi. Bandarísk yfirvöld eru að rannsaka hvort ekki sé öruggt að Rússar hafi skotið henni. Líklegt? Spyr sá sem ekki veit en grunar margt. Við erum í hættulegu kompaníi með stærstu auðhringum heims, þar á meðal hergagnaframleiðendum og handbendum þeirra. Ísland úr NATÓ HERINN BURT. Jóhannes Gr. Jónsson
Með glórulausari gerningum forsætisráðuneytisins er mál nr. 2/2023. Það er tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn „hatursorðræðu.“ Áætlunin, í sautján liðum, var birt í „samráðsgátt“ þann 4. janúar síðastliðinn. Næsta mál gæti heitið „Varnir gegn illsku heimsins“, eða „Aðgerðaráætlun gegn ranglæti heimsins.“ Í tillögunni gegn „hatrinu“ er þó viðurkennt að ...
„Nú vinnum við ætlunarverk NATO“, segir varnarmálaráðherra Úkraínu, Oleksiy Reznikov. Í viðtali í úkraínsku sjónvarpi 5. janúar sl. talaði hann um hvernig hernaður Úkraínuhers fellur að verkefnum NATO. Nánar sagði Reznikov: „Þeir skilja þetta alveg núna. Við sögðum þeim það áður og þeir brostu. En núna segja kollegar mínir, varnarmálaráðherrarnir, skýrt í ræðum sínum ...
Kaup Elon Musk á Twitter voru frágengin í október. Þau fóru fram af hans hálfu undir merkjum tjáningarefrelsis og „afnáms ritskoðunar“. Í íslenskum fjölmiðlum var okkur sagt að eigendaskiptin boðuðu að öllum líkindum stóraukna „hatursorðræðu“. Í desember sl. gerðist það svo að af hálfu nýrra eigenda var gefin, í nokkrum skömmtum, innsýn í innri tölvuskrár Twitter, og þar birtist mikið „ritskoðunarveldi“. Um það heyrum hins vegar lítið í fjölmiðlum ...
Það er útbreidd skoðun í þjóðfélaginu að fullveldi sé gamaldags. „Deilihagkerfið“ gengur út á samnýtingu hlutanna. Þar eru fá ef nokkur takmörk. Fólk telur að hægt sé að „deila fullveldi“ ríkja [sem er ekki hægt], það deilir bílum, tækjum, leigir fötin sem það stendur í, leigir hús og íbúðir (Airbnb) og fleira í þeim dúr. Fólk deilir jafnvel mökum og sambýlisfólki. Þessi þróun er ekki að öllu leyti neikvæð ...
Útbreidd trú er það að Evrópusambandið [ESB/Sambandið] sé sérstakt friðarbandalag og afar lýðræðislegt fyrirbæri. Hvorugt á við rök að styðjast. Enda þótt friður í Evrópu hafi upphaflega legið til grundvallar forvera Evrópusambandsins, þ.e. Kola-og stálbandalaginu, eftir síðari heimsstyrjöld, er fátt sem bendir til þess í dag að sambandið sé sérstakt friðarbandalag, í raun fjarri því ...
Því miður verður ekki sagt um frumvarp um vefverslun (netverslun) með áfengi sem fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram í fyrra að því hafi ekki fylgt nein hætta á aukinni neyslu. Sama gildir að öllum líkindum um frumvarp dómsmálaráðherra um sama efni sem væntanlegt var ...