„FJÁRFESTIR“
Aldrei mætti framtíð feiminn,
fénu stal í pokum.
Vildi kaupa hálfan heiminn,
Himnaríki að lokum.
Kári
Aldrei mætti framtíð feiminn,
fénu stal í pokum.
Vildi kaupa hálfan heiminn,
Himnaríki að lokum.
Kári
Ný stjórn Katrínar Jakobsdóttir hefur nú tekið við á Bessastöðum. Áður var stjórnarsáttmálinn kynntur í bleiku bandi.
Gerðar verða breytingar á Stjórnarráðinu þar sem málaflokkum er sundrað en öðrum steypt saman á ákaflega sérviskulegan hátt. Duttlungar og stundarhagsmunir nokkurra einstaklinga látnir ráða. Virðingarleysi fyrir því fólki sem skákað er til eru engin takmörk sett. Forsætisráðherra hefur valið að halda stefnuræðu sína á fullveldisdaginn 1. desember 2021. Þar mun hún kynna ...
Bjarni
Eftir hægar hríðir komst á koppinn
Katrín og stjórnin fyrir horn sloppin
stóllinn tryggður
grunnur byggður
að frjálshyggjustjórn sem er orpin.
Hún virðist nú ekki einkar hlý
enda var hún á felgunum
Þó ríkisstjórnin hér þykist ný
er gamalt sull á belgjunum.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Hún gerir ríka ríkari
raunverulega jú
og spillta líka spilltari
speki mín er sú.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Ég var að lesa grein Ögmundar hér á síðunni um að Sjálfstæðisflokkur og VG eigi ekki að vera saman í ríkisstjórn. Jú, það er fróm ósk okkar flestra, en erfitt við að eiga meðan svo margir kjósendur greiða Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt - og vinstri menn halda áfram að vera vinstri mönnum verstir. Framsókn er nú í lykilstöðu og ríkisstjórn VG, Framsóknar, Samfylkingar og Flokks fólksins yrði vitanlega ekki til gegn vilja Framsóknar. Mér finnst ekki alveg ljóst í greininni hvort félagi Ögmundur metur það meira að koma stefnumálum VG í framkvæmd eða að hafa þau bara letruð með nógu rauðu letri í stefnuskrá. Stefnumálin sem hann telur VG hafa snúið baki við eru langflest enn á sínum stað í stefnuskrám ...
Þorvaldur Örn Árnason
Heilbrigðiskerfið nú halloka fer
helvítis kóvið um vandræðin sér
þeir eru að byggja
og framtíð tryggja
en áratugina það tekur allt hér.
Félagslegri einangrun flestir lúta
í fjölmenni bera grímur og klúta
hanga nú heima
láta sig dreyma
og gleðjast við fáeina flösku stúta.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Góð grein og þörf Ögmundur! Oft hefur verið nauðsyn en nú er nefninlega algjör þörf á róttækri greiningu á ástandinu hér hjá okkur. Þjóðin er lömuð ..... hvað næst! Nú hef ég alls ekki tekið virkan þátt í íslenskum stjórnmálum en hef fylgst grannt með síðastliðin nokkur ár. Í mínum huga er það stjórnsýslan /flokkakerfið sem aftrar því að heilbrigð þróun geti orðið. Við þurfum persónukjör og opið lýðræði. Ótrúlegt að virða þetta fyrir sér því gott fólk er þarna allsstaðar. Miðað við kyrrstöðuna svo skrýtið, síðan kemur sérhagsmunagæslan, fámennið og frænd/kunningjahyglin sem tvinnast saman ...
Bergljót Kjartansdóttir
Í framhaldi af skrifum þínum um framkvæmdastjóra NATÓ þá teljum við að Stoltenberg sé úlfur í sauðagæru, eða hefur hann þegar stökkbreyst í úlf í úlfsfeldi? Tillaga okkar: Þýskaland verður að komast úr NATÓ - eins fljótt og auðið er! En Þjóðverjar "græningjar" munu vilja styrkja NATÓ og auka við vígbúnaðaráætlun bandalagsins.
Günter Rath/Annette Groth
...
Trúnaðarmenn þar tóku öll völd
af tillitsleysi var ákvörðun köld
á milli tanna
var ´ún Anna
fagleg aftaka á frjálshyggjuöld.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Þú segir að ekki ætti að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en þá spyr ég þig hvern ætti yfirleitt að kjósa? Hvers vegna ætti að kjósa VG eða ætti kannski ekki að gera það? Ég spyr í ljósi undangenginna fjögurra ára og yfirstandandi stjórnarmyndunar. Ég sakna þess að heyra frá þér um þetta. Hjörleifur Guttormsson segir eftirsóknarvert að fá framhald á stjórn Sjálfstæðisflokks og VG. Ertu sammála? ...
Jóhannes Gr. Jónsson.
Tryggingastofnun ríkisins(TR) verði gert óheimilt að skerða húsnæðisbætur langveikra og fatlaðra örorkulífeyrisþega og eftirlaunaþega í EIGNARHÚSNÆÐI, ef þeir leigja út frá sér.
Litið verði á leigutekjur sem atvinnufrítekjur sem er um 107. þús. kr. á mánuði hjá öryrkjum en u.þ.b. 200. þús. kr. á mánuði á öldruðum. SAMBÆRILEGT ÞVÍ SEM GERT ER Á NORÐURLÖNDUM. Ath! Öryrkjar og aldraðir mega vinna "úti" án þess að lífeyrisbætur skerðist. - Hver er munurinn á sitthvoru? Nú er bráðavöntun á húsnæði, jafnt fyrir ...
Björk Magnúsar og Grétudóttir
Í ellinni eitthvað að vafra
eins og honum ber
Sagður nú sjötíu og fjagra
sóma drengurinn hér.
Nú árin telur ansi mörg
að telja þau ei nenni
Æskann farin fyrir björg
orðinn gamalmenni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Tímarnir breytast og mennirnir með
í pólitík margan þar snúning hef séð
ei lygina segi
villast af vegi
og fullreynt virðist á langlundargeð.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
... Alltof lítið hefur verið fjallað um snjallmælavæðingu í þjóðfélagsumræðunni – þar sem tekin er gagnrýnin afstaða – heldur gerist þetta á „sjálfstýringu“. Það er ævinlega versta aðferðafræði sem hugsast getur. Sú besta er að taka ákvörðun að vandlega athuguðu máli, með fullri aðkomu fjölda fólks og eftir atvikum stjórnenda fyrirtækja. Ákvörðun er þá niðurstaða af opinni og ítarlegri rannsókn máls (stundum kallað „lýðræði“). „Sjálfstýringin“ kemur ekki á óvart. Umræða um ...
Lesa meiraLeiðtogafundur NATO í Madríd skilaði einkum þrennu. a) Fundurinn lýsti yfir: “Aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins stafar bein ógn af Rússlandi.” b) Fundurinn samþykkti næstu útvíkkun NATO, sem sé samþykkti hann aðildarumsóknir Finnlands og Svíþjóðar að bandalaginu. c) Í fyrsta sinn tilgreindi NATO í pólitískum viðmiðunarreglum sínum Kína sem andstæðing ...
Lesa meira... Þegar svo er komið að ríki eru þvinguð til þess að afsala sér fullum og óskoruðum rétti yfir orkumálum sínum hljóta menn að sjá að það er eitthvað verulega mikið að. Þessu má líkja við „efnahagsþvinganir“ sem ríkin fá yfir sig með innleiðingu ESB-gerða. Almenningi er sent langt nef, hann er ekki spurður álits, enda í takti við ólýðræðislegt fyrirkomulag innan ESB. Fólk sem enginn kaus er þar talið bærara og hæfara til þess að ráða framtíð þjóðfélaga en þegnar þeirra ...
Lesa meiraKátína ríkir mikil án vafa hjá stríðs- marskálkum Vestanvalds og hjá rússneskum kollegum þeirra. Loksins tókst nú að kæfa friðarmjálm með æsilegum stríðsöskrum. Ekki er gleði vopnasmiða minni ... Í verki hefur forysta VG nú horfið frá þeim hluta af grunni VG með hrossakaupum við hægriöfl um valdasetu. Sú er staðan að Pentagonvaldi er boðið geðþóttavald um hernaðar-afnot af Íslandi. Víst er að í bígerð er nýtt átak til hervæðingar ...
Lesa meira... Með hverjum pakka herðist kverkatak ESB á einstökum aðildarríkjum á sviði orkumálanna. Kvaðirnar og skyldurnar verða sífellt meira íþyngjandi og oft í engu samræmi við tilefnið. Hvað Ísland snertir má spyrja: hvert er raunverulegt gildissvið EES-samningsins?
Þegar samningar eru gerðir (almennt talað) eru þar að jafnaði sérstök ákvæði um gildissvið, þ.e.a.s. um hvað samningurinn snýst og hversu langt hann nær. EES-samningurinn er stundum kallaður „lifandi samningur“ en í því felst að hann tekur breytingum, nýjar ...
Áætlun í Hvítabretlandi um að reisa fangabúðir fyrir “ dökk innskot ”, skv. litgreiningu, flóttafólk undan stríðshelvíti, hungri og pólitískum ofsóknum, er framkomin. Rúanda er keypt til vistunar á dökku flóttafólki, því fullgott til dvalar og þar skulu fangabúðir Hvítabretlands reistar og starfræktar. Þar með skal brugðist við “svörtu hættunni” sem steðjar að Hvítabretlandi nútímans, henni er ætlað að “ gufa upp”, týnast í myrkviðum Afríku, fjarri siðmennt. Til Hvítaíslands slæðist stundum mislitt fólk á flótta ...
Lesa meira