ERTU SAMMÁLA SEÐLABANKA?
Sæll Ögmundur.
Deilir þú eftirvæntingu Seðlabankamanna eftir spákaupmönnum í
vaxtamunarviðskipti? Síðast þegar núverandi stjórnendur Seðlabanka
Íslands lögðust í víking, tókst þeim að koma hinum margrómuðu
Jöklabréfaútgáfu í 1.000 milljarða og þar með urðu vextir ein
helsta útflutgningsafurð Íslendinga. Í vikðurkenningarskyni, veitti
núverandi aðalhagfræðingur bankans móttöku bikar frá Drobny
Advisors sem sérhæfa sig í ráðgjöf til vogunarsjóða. Telur þú
einhver hófleg efri mörk á heildarútgáfu jöklabréfa í framtíðinni?
Er einhverstaðar hægt að kynna sér stefnu VG varðandi
peningamálastjórnun?
Arnar Sigurðsson
Ég deili ekki þessari eftivæntingu Seðalabanakans
nema síður sé og hallast að því að við séum sömu skoðunar.
Ögmundur