Beint á leiðarkerfi vefsins

Umhverfi

6. Desember 2007

LAGAHEIMILDIR SKORTIR FYRIR FRAMKVÆMDUM VIÐ ÞJÓRSÁ!


Hinn 9. maí síðastliðinn samþykktu ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar fyrir hönd ríkisins samkomulag um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum ríkisins í neðri hluta Þjórsár án nokkurs fyrirvara í þágu fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs andmælti þessu á þeirri forsendu að þetta væri gert án heimildar í lögum og fór fram á að Ríkisendurskoðun kannaði hvort þetta stæðist lög. Í dag birti Ríkisendurskoðun niðurstöður sínar þar sem fram kemur að gagnrýni VG var á rökum reist ...

5. Desember 2007

SJÓN ER SÖGU RÍKARI


...Það sem við, sem andæfðum þessum áformum, því miður vissum eða grunaði sterklega var að ákvörðun um virkjun hefði í reynd verið tekin...  Það skyldi virkjað hvað sem tautaði og raulaði. Á þessu ferðalagi okkar sáum við fjölda þungavinnuvéla... Skýringin var sögð sú að verið væri að rannsaka svæðið. Hverju barni mátti þó vera ljóst... Þetta flaug mér í hug þegar ég sá í dag plakat með myndum og spurningum frá nátturuverndar- og umhverfissamtökunum Sól á Suðurlandi. Á plakatinu má sjá framkvæmdir við Þjórsá...

28. Október 2007

ÁKALL UM NÁTTÚRUVERND ÚR KRÝSUVÍKURKIRKJU


Á sunnudag fyrir réttri viku predikaði séra Gunnþór Ingason, prestur í Hafnarfirði, í Krýsuvíkurkirkju. Kirkjan er agnarsmá, byggð um miðja 19. öld. Stærð kirkjunnar er hins vegar í engu samræmi við þá uppljómun sem menn verða þar fyrir innandyra. Altaristaflan er eftir Svein Björnsson listmálara heitinn, en "hús málarans" er einmitt ekki langt undan...Þetta eru umhugsunarverð orð frá séra Gunnþóri Ingasyni. Nýlega birtist hér á síðunni tilvitnun í áhrifaríka grein sem hinn kunni kvikmyndagerðarmaður Erendur Sveinsson ritaði í Fjarðarpóstinn ekki alls fyrir löngu. Hann varaði þar við því að Krýsuvíkursvæðið yrði stóriðju og gróðahyggju að bráð. Erlendur spyr hvort menn ætli að láta ...

4. Október 2007

ÓÐUR TIL KRÝSUVÍKUR


"Og nú getum við spurt hvort lífið sé þess megnugt að “endurrita leiftrandi von á dauðans minnisblað”. Og hvort guð okkar sé að vinna vorverkin sín í Krýsuvík, þar sem “jörðin föndrar glöð við sína liti”. Kvæði Matthíasar er um von. Enginn er svo aumur að hann geti ekki átt sér von sem ekki verður frá honum tekin. Það er von okkar allra, sem aðhyllumst ríki fegurðarinnar í lýðræðissamfélaginu íslenska að við verðum spurð, hvort við séum tilbúin að fórna Krýsuvík fyrir þá peninga sem postular Mammons vilja búa þar til. Við vonum að komið verði til móts við þá ósk, sem þá yrði niðurstaða í kosningu, það er að segja ef leyfisumsókn Hitaveitunnar verður ekki hafnað. Verði vilji meiri hluta fólksins forsómaður eftir allt sem á undan er gengið á Kárahnjúkum, Þjórsársvæðinu og víðar, ætli við séum þá ekki á förum sem þjóð?"

30. Júní 2007

FAGRA ÍSLAND – DAGUR FIMM

Birtist í Fréttablaðinu 29.06.07.
...Svona talar umhverfisráðherra Samfylkingarinnar, sem kosinn var á þing með fyrirheitum um stóriðjustopp í fimm ár. Að sjálfsögðu veit ráðherrann að Landsvirkun er ekki "bara fyrirtæki á markaði". Landsvirkjun er í reynd hluti af ríkisvaldinu. Hún er í eigu þjóðarinnar og lýtur forræði kjörinna fulltrúa hennar, þar á meðal umhverfisráðherra og annarra handhafa stefnu Samfylkingarinnar á Alþingi; þeirra sem kjörnir voru í nafni Fagra Íslands.

27. Júní 2007

FAGRA ÍSLAND – DAGUR FJÖGUR

Birtist í Fréttablaðinu 26.06.07.
...Bókanir um þetta efni í bæjarráði Hafnarfjarðar eru þess virði að kynna sér. Þegar ég segi að stóriðjustefnan sé hér enn á fullri ferð kemur á mig hik. Getur verið að hún sé að færast í aukana? Ég held að flestum hafi ofboðið belgingurinn og hrokinn í fyrrnefndum forstjóra Alcans sem í heimsókn sinni hingað til lands telur sig þess greinilega umkominn að ganga yfir land og þjóð á skítugum skónum. Hann virðist skynja að í Samfylkingunni er engin fyrirstaða. Þess vegan spyr ég, hvað næst? Ég er farinn að kvíða fyrir hinum fimmta degi í fögru Íslandi Samfylkingarinnar.

8. Júní 2007

FAGRA ÍSLAND - DAGUR ÞRJÚ

Birtist í Fréttablaðinu 07.06.07.
Þegar Samfylkingin kynnti umhverfis- og virkjanastefnu sína undir yfirskriftinni Fagra Ísland var sérstaklega til þess tekið að á komandi fimm árum yrði hlé á stóriðjuframkvæmdum í landinu. Á degi tvö í stjórnarsamstarfinu kom svo í ljós að álitamál varðandi Þjórsárver og Norðlingaölduveitu höfðu ekki verið rædd í stjórnarmyndunarviðræðunum á þann hátt að lyktir fengjust og niðurstaða. Um það báru misvísandi yfirlýsingar frá hendi oddvita ríkisstjórnarflokkanna vitni. Ef um hefði verið að ræða pólitískt hjartans mál má ætla að málið hefði verið til lykta leitt. En þegar á degi tvö í ríkisstjórnarsamstarfinu hafði semsé komið í ljós að Fagra Ísland hafði verið látið sitja á hakanum. Nú er runninn upp þriðji dagurinn þar sem Fagra Ísland kemur upp í hugann. Gengið hefur verið frá ...

11. Apríl 2007

VG, SJÁLFBÆR ÞRÓUN OG VARIÐ LAND


Í dag kynnti Vinstrihreyfingin - grænt framboð stefnu sína í umhverfismálum. VG hefur gefið út ritið Græn framtíð um sjálfbæra þróun. Sjálfbær þróun snertir samfélagið allt og snýst um afstöðu stjórnvalda og almennings til samfélags og umhverfis...Áhersla á umhverfi og sjálfbæra þróun er einn af hornsteinum í stefnu Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Það er gleðilegt að aðrir flokkar skuli hafa tekið umhverfismálin meira inn í sínar kosningaáherslur en fram til þessa. Það ber vott um árangur þrotlausrar baráttu VG á undanförnum árum að svo skuli vera. Þeim mun fleiri sem koma auga á okkar ...

29. Mars 2007

VG Í HAFNARFIRÐI: UMHVERFISMAT NÁI TIL ALLS SUÐVERSTURLANDSINS

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi VG í Hafnarfirði bendir á þá staðreynd í bókun í bæjarráði að orkuþörf stóriðjuáforma á suðvesturhorninu samsvari “fjórum nýjum vatnsaflsvirkjunum í Þjórsá, frá Búðarhálsi að Urriðafossi og fimm til sjö nýjum jarðvarmavirkjunum á svæðinu frá Hengli og út á Reykjanes.”
Svo mikil orkuöflun “myndi valda stórkostlegu raski og fjölmargar háspennulínur myndu rísa á svæðum sem í dag eru án slíkra mannvirkja.” Þess vegna sé nauðsynlegt að sveitarfélögin sem kæmu til með að verða fyrir áhrifum af fyrirhuguðum framkvæmdum beiti sér fyrir því að heildstæð áætlun verði tekin í umhverfismat...Þá hefur Guðrún Ágústa bókað mótmli gegn þvi að meirihlutinn í Hafnarfirði neiti að láta styðja myndarlega við bakið á Sól í Straumi Sól í Straumi...

29. Mars 2007

HJÖRLEIFUR VEKUR ATHYGLI Á SÉRSTÆÐRI FEGURÐARSAMKEPPNI

...Í fyrirhugaðri kosningu í Hafnarfirði um heimild til handa Alcan til stóraukinna umsvifa hefur álrisinn gengið fram af mörgum með fjásraustri sínum til að fegra eigin málstað. Andspænis álrisanum standa félítil grasrótarsamtök en meirihluti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði  hefur því miður ekki haft vilja eða djörfung til að rétta hlut þessara samtaka!  Hjörleifur Guttormasson, fyrrum alþngismaður og basráttumaður fyrir íslenskri náttúru sendi frá sér pistil í dag um tengt efni. Pistil sinn nefnir Hjörleifur Fjölþjóðahringar í fegurðarsamkeppni...

24. Mars 2007

"EINHVERS STAÐAR ERU MÖRKIN Í HUGUM OKKAR ALLRA": PRÓFASTURINN Á REYNIVÖLLUM KALLAR EFTIR ÞJÓÐARSÁTT


Séra Gunnar Kristjánsson, prófastur á Reynivöllum í Kjós, flutti magnaða ræðu á fundi í Hraunseli í Hafnarfirði um náttúruvernd og þjóðgarð á Reykjanesi. Önnur stórgóð erindi voru flutt á ráðstefnunni og mun ég gera henni nánari skil hér á síðunni.
Nánast er sama hvar borið er niður í ræðu séra Gunnars, alls staðar er að finna umhugsunarverðar og upptendrandi hugleiðingar. Hann talar mjög ákveðið í þágu náttúruverndar: "Það er tímaskekkja að óska eftir auknum virkjunum og aukinni stóriðju hér á landi. Vel menntuð þjóð í upplýstu og skapandi samfélagi með háþróað skólakerfi hefur margar leiðir um að velja til að auka velferð sína. Það gerir hún best með fjölþættu, litríku og skapandi atvinnulífi þar sem hver og einn finnur leið til að nýta sína starfsgetu....Síðan segir Reynivalla-prófastur og er þaðan sótt fyrirsögnin:...

24. Mars 2007

ELDFJALLAGARÐUR – NÝ SÝN OG NÝ TÆKIFÆRI Á REYKJANESSKAGA


...Á ráðstefnunni voru haldnar fimm framsögur hver annarri áhugaverðari. Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur fjallaði um jarðfræði Reykjanesskagans. Fyrirlestur Ástu Þorleifsdóttur, jarðfræðings bar heitið, Eldfjallagarður: Atvinna, fræðsla og útivist. Bergur Sigurðsson, frkvstj. Landverndar fjallaði um álver og orkuvinnslu, Jónatan Garðarsson, þáttagerðarmaður hélt erindi sem hann kallaði einfaldlega Reykjanessfólkvangur. Fimmta erindið var hugvekja séra Gunnars Kristjánssonar prófasts: "Útsprunginn fífill" Endalok stóriðju? Hugvekju séra Gunnars er að finna hér á síðunni. Ég hef einnig fengið afar fróðlegt erindi Jónatans Garðarssonar sem hann hafði reyndar aðeins til...

23. Mars 2007

DAGUR VATNSINS - HVER Á VATNIÐ?

Birtist í Morgunblaðinu 22.03.07.
...Íslendingar eiga því að venjast að hafa aðgang að besta vatni sem finna má á jarðríki. Þess vegna reynist okkur erfitt að setja okkur í spor þeirra sem ekki hafa aðgang að ómenguðu vatni nema í mjög takmörkuðum mæli. Ef svo hins vegar færi að vatn og vatnsveitur yrðu einkavæddar og aðgangur að vatninu seldur dýrum dómum yrði annað upp á teningnum. Vegna mikilvægis vatns fyrir íslenska þjóð og lífríki landsins ályktuðu samtökin 14 "að fest verði í stjórnarskrá Íslands ákvæði um skyldur og réttindi stjórnvalda og almennings hvað varðar réttindi, verndun og nýtingu vatns."
Á þetta er ástæða til minna í tilefni dagsins.

11. Mars 2007

FRUMKVÆÐI ÁLKFTANESLISTANS AÐ VERNDUN SKERJAFJARÐAR OG GRÆNN TREFILL ERLU


Sigurður Magnússon
, hefur reynst afar kröftugur sem bæjarstjóri á Álftanesi. Undir hans forystu hafa félagsleg og umhverfistengd verkefni verið sett á oddinn. Sveitarfélagið  á þakkir skildar fyrir frumkvæði að ráðstefnu um verndun Skerjafjarðar sem efnt var til ...Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, félagi minn í póltíkinni sem skipar annað sætið í Kraganum, Suðvestur-kjördæmi, þar sem ég er einnig á lista, spurði á fundinum um hinn svokallaða Græna trefil. Hún fékk greið svör um viljann til að vefa þann trefil áfram. En að fundinum loknum var okkur bent á konu, sjálfan frumkvöðulinn að þessum trefli,  Erla Bil Bjarnardóttir sem fræddi okkur um þennan sérstaka vefnað. Hér er frásögn hennar um...

26. Janúar 2007

ALCAN OG HEILÖG BARBARA


...Það er ekki aðeins að með skipulaginu verði þrengt verulega að framtíðarmöguleikum byggðar og Hafnfirðingum boðið upp á aukna mengun heldur er sögu og minjum svæðisins sýnd lítil virðing. Kapellan í hrauninu og líkneskið af heilagri Barböru, verndara og dýrlingi ferðalanga, lenda samkvæmt deiliskipulaginu inn á miðri lóð álversins, á milli risavaxinna kerskála. Að þessum sögulegu minjum...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Umhverfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta